Að minnsta kosti 100 börnum, tólf ára og yngri, var vísað til sérstakrar deildar breskra stjórnvalda sem sinnir málum tengdum nauðungarhjónaböndum á árunum 2021 til 2025. Þar af voru 27 börn aðeins fimm ára eða yngri.
Baráttukona gegn nauðungarhjónaböndum varar við því að einhver börn muni ekki skila sér aftur í skólann að loknu sumarfríi. Önnur kunni að koma heim trúlofuð eða jafnvel gift.
Upplýsingarnar fékk breska fréttastofan Press Association hjá innanríkisráðuneytinu með upplýsingabeiðni. Þær sýna að 62 barnanna voru tíu ára eða yngri og 27 fimm ára eða yngri.
Í málum yngstu barnanna getur verið um að ræða að barni hafi verið lofað tilvonandi maka mörgum árum áður en hjónabandið á að fara fram. Tilfelli voru um að fleiri en eitt systkini hafi verið skráð í sumum málanna.
„Sum þessara barna munu hverfa úr skólanum“
Jasvinder Sanghera flúði sjálf að heiman 14 ára þegar fjölskylda hennar ætlaði að þvinga hana í hjónaband.
Hún segir tölurnar um yngstu börnin afar óhugnanlegar og telur raunverulegan fjölda fórnarlamba mun hærri, enda komist flest slík mál aldrei inn á borð opinberra stofnana.
„Ég veit að þegar skólarnir opna í september verða börn sem munu ekki mæta,“ segir hún.
„Mun einhver spyrja hvar þau séu eða verða þau einfaldlega tekin af nemendaskrá? Önnur börn koma aftur trúlofuð eða jafnvel gift.“
Óttinn við ásakanir um rasisma
Sanghera segir gerendur oft reyna að fela sig á bak við menningu og trúarbrögð og saka þá sem grípa inn í um rasisma.
„Þetta er menning okkar. Þetta er trú okkar. Þið eruð rasistar,“ segir hún um varnir sem starfsfólk stofnana mæti oft. Tilgangurinn sé að koma fólki úr jafnvægi og fá það til að líta undan.
„Menningarlegt umburðarlyndi þýðir ekki að við eigum að sætta okkur við hið óásættanlega. Þetta er ofbeldi.“
Rakib Ehsan, félagsfræðingur og sérfræðingur í málum af þessu tagi, tekur í sama streng. Hann segir tölurnar afhjúpa myrka hlið bresks fjölmenningarsamfélags og hvetur opinberar stofnanir til að láta ekki ótta við ásakanir um fordóma stöðva sig í að vernda börn.
Pakistan tengt 41 prósenti slíkra mála árið 2025
Opinber ársskýrsla deildarinnar sýnir að aðstoð var veitt í 406 málum árið 2025. Þar af vörðuðu 391 mál nauðungarhjónabönd og 15 kynfæralimlestingar kvenna.
Pakistan var það land sem oftast tengdist málunum, alls 165 sinnum eða í 41 prósenti tilvika. Alls voru 64 prósent þeirra sem fengu aðstoð breskir ríkisborgarar, en með tvöfalt ríkisfang.
Nauðungarhjónabönd eru refsiverð í Bretlandi. Á Englandi og í Wales hefur lágmarksaldur hjónabands verið 18 ár frá 2023 og þar er refsivert að gera ráðstafanir til að barn giftist, jafnvel þótt hótunum eða öðru ofbeldi sé ekki beitt.