Skotárásin í Kanada – Faðir fórnarlambs gagnrýnir áherslur fjölmiðla og lögreglu á kynvitund árásarmanns

Skotárásin í Tumbler Ridge Secondary School í Bresku Kólumbíu kostaði níu mannslíf, þar af sex börn. Tugir slösuðust og samfélagið í 2.400 manna bænum er í áfalli. Morðinginn fannst látinn á vettvangi og er talið að hann hafi svipt sig lífi.

Níu létust og 25 særðust í skotárás í skóla í Kanada – Árásarmanninum lýst sem „aðila í kjól með brúnt hár“

Faðir fórnarlambs ósáttur við áherslur

Auglýsing

Faðir 12 ára stúlku sem lést í árásinni hefur gagnrýnt harðlega hvernig umræðan hefur þróast í kjölfarið. Að hans mati hafa fjölmiðlar og samfélagsmiðlar lagt meiri áherslu á kyn og kynvitund gerandans en á börnin sem voru myrt.

Í viðtali lýsti hann því hvernig dóttir hans fór í skólann eins og hvern annan dag. Síðar hringdi sonur hans úr felustað í skólanum og sagðist ekki vita hvar systir sín væri. Níu klukkustundum síðar fékk fjölskyldan staðfest að hún væri látin.

Hann segir að í stað þess að deila myndum og sögum fórnarlambanna hafi athyglin beinst að gerandanum og hugmyndafræði. Hann hvatti fjölmiðla til að birta myndir af börnunum og heiðra minningu þeirra, í stað þess að veita morðingjanum frekari athygli.

Deilt um myndbirtingu

Gagnrýni hefur einnig komið fram á myndbirtingu gerandans í fjölmiðlum. Sumir telja að svo virðist sem átt hafi verið við mynd sem birt var á fjölmiðlinum City News þannig að viðkomandi líti kvenlegar út en á öðrum myndum sem gengið hafa á netinu.

Eins og sjá má hefur City News augljóslega breytt myndinni

Ekki hefur verið birt opinber staðfesting á því hvort mynd hafi verið unnin sérstaklega, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem fjölmiðlar ytra fegra myndir af fólki sem fjallað er um í fréttum.

MS NOW (áður NBC) breytti mynd af manninum sem var skotinn til bana af ICE í Minnesota af óskiljanlegum ástæðum

Lögreglan og upplýsingar um kyn

Í fyrstu neyðarviðvörun var árásarmanninum lýst sem „konu í kjól með brúnt hár“. Lögregla gaf ekki strax upp að viðkomandi hefði fæðst karlkyns.

Á blaðamannafundi hjá Royal Canadian Mounted Police kom síðar fram að morðinginn, hinn 18 ára Jesse van Rootselaar væri karlmaður en verið í „kynleiðréttingarferli“ frá um 12 ára aldri og skilgreint sig sem konu bæði félagslega og opinberlega.

Þegar fjölmiðill spurði sérstaklega hvort um trans einstakling væri að ræða, sagði lögregla að hún hefði notað þau fornöfn sem morðinginn valdi sér. Þá var jafnframt sagt að of snemmt væri að meta hvort kynvitund hefði einhver tengsl við árásina.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing