Í drögum að skýrslu sérstaks erindreka Sameinuðu þjóðanna um ofbeldi gegn konum er staðfest það sem margir gagnrýnendur hafa lengi varað við: að það sé ,,samstillt alþjóðlegt átak til að þurrka út“ konur og stúlkur og að upplifa ónot í eigin skinni sé ,,félagslegt smit.“
Skýrslan, sem ber titilinn „Kynbundið ofbeldi gegn konum og stúlkum: ný landamæri og ný málefni: Skýrsla sérstaks erindreka um ofbeldi gegn konum og stúlkum,“ var tekin saman af Reem Alsalem mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR).
Aftengja orð kvenna og konur
Skýrsla Alsalem er sláandi í ljósi þess að hún kemur frá skrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Til dæmis varar hún við þeirri ógn sem trans-hugmyndafræðin er við konur.
Samstillt alþjóðlegt átak er í gangi til að aftengja skilgreininguna á körlum og konum frá líffræðilegu kyni þeirra og eyða lagalega flokknum ,,konur.“
,,Þetta er ekki skrifað af íhaldssömum álitsgjafa eða kynjagagnrýnum femínista. Skýrslan er skrifuð af yfirmanni skrifstofu Sameinuðu þjóðanna.“
Átakið hefur grafið undan raunhæfum árangri í jafnrétti milli karla og kvenna. Konum er því neitað um réttmæta viðurkenningu sem sérstakan flokk í lögum og samfélagi.
Þetta er tegund af ,,þvingandi aðlögun“ sem byggir á væntingum um að konur séu svo góðar að fórna eigin viðurkenningu og vernd í þágu annarra.
En það er einmitt það sem gagnrýnt er í hugmyndafræði trans-fólks og margir hafa sagt til fjölda ára.
Alsalem fordæmir hreinsun kvensértækra hugtaka úr tungumálinu og bendir m.a. á hugtök sem margir hafa skrifað um lengi:
Kúgun kvenna í tungumáli og lögum á sér stað í nokkrum myndum: með því að skipta út kynbundnu tungumáli fyrir hlutlaust tungumál; með því að endurtúlka kynbundið tungumál þannig að það vísi til kynvitundar frekar en kyns; og með því að vísa til kvenna í ómannúðlegum, líffræðilega minnkandi hugtökum eins og ,,fæðandi einstaklingur“, ,,sá sem er á blæðingum“ ,,leghafi“ eða með ,,framgöt.“
Takið til athugunar
Hugleiddu: Þetta er ekki skrifað af íhaldssömum álitsgjafa eða kynjagagnrýnum femínista. Skýrslan er skrifuð af yfirmanni skrifstofu Sameinuðu þjóðanna.
Alsalem notar einnig orðasambönd sem gefur til kynna þann vilja að viðurkenna ,,trans-sjálfsmyndin“ sjálfa; Hún vísar á einum stað til viðleitni, til að veita karlmönnum viðurkenningu sem skilgreina sig sem konur eða stúlkur“ en forðast vísvitandi viðurkennt hugmyndafræðilegt orðalag ,,trans-kvenna“ eða ,,trans-stúlkna.“
Nokkrum blaðsíðum síðar, eftir að hafa fordæmt stjórnvöld fyrir að safna ekki kynbundnum gögnum, skaut hún einnig á klámiðnaðinn og fordæmir ,,klámkerfið, sem sýnir ofbeldisfullar og ómannúðlegar myndir af konum.“
Skýrsla Alsalem er beinlínis höfnun á uppgangi trans-fólks. Hún segir að ónot í eigin skinni sé ,,félagslegt smit.“ Hún hrósar úrskurði Hæstaréttar Bretlands um lagalegu skilgreininguna á að kona vísi til líffræðilegs kyns og segir að skilgreiningin ,,verndi konur og stúlkur undir sérstökum flokki.“
Alsalem vísar á einum stað til ,,skaðlegra afleiðinga félagslegra og læknisfræðilegra breytinga á börnum“ í sannkölluðum sprengjukafla sem hafnar hugmyndinni um ,,kynstaðfestandi meðferð“, nánast algjörlega.
Félagslegt smit
Það er vel þekkt að einhverfuröskun veldur því, hjá mörgum börnum, að þau upplifa ónot í eigin skinni. Rannsóknir benda til, að barn með einhverfu sé í þrisvar sinnum meiri hættu á að greinast með ónot í eigin skinni samanborið við þau sem hafa ekki einhverfu.
Sérstaklega eru það stúlkur sem verða fyrir áhrifum. Þessi hópur er mjög viðkvæmur fyrir félagslegu smiti, sem þau líta á sem bjargráð í staðalmyndunarleit. Af því leiðir að börnin taka ranga ákvörðun.
Langvarandi og skaðlegar félagslegar og læknisfræðilegar breytingar á börnum, þar á meðal stúlkna, eru í auknu mæli skráðar.
Breytingarnar fela í sér: viðvarandi og aukin sálræn vanlíðan; viðvarandi óánægja með líkamann; ófrjósemi, snemmbúin tíðarhvörf og aukin hætta á beinþynningu; truflun á kynlífi; og tap á getu til að hafa barn á brjósti í tilfellum brjóstnáms svo fátt eitt sé nefnt.
Það hefur réttilega leitt til þess að lönd eins og Brasilía, Holland og Bretland hafa breytt um stefnu og takmarkað aðgengi barna að kynþroskablokkum, kynhormónum og skurðaðgerðum á kyn- og æxlunarfærum.
Heilbrigðisstaðlar virtir að vettugi
Að veita börnum aðgang að svona ,,kynstaðfestandi“ meðferð brýtur ekki aðeins gegn rétti þeirra til öryggis og frelsi frá ofbeldi, heldur virðir það að vettugi mannréttindi þeirra til ströngustu staðla heilbrigðisgeirans og gengur gegn hagsmunum þeirra. Börn geta ekki veitt samþykki fyrir slíkum aðgerðum. Í aðstæðum þar sem slíkar aðgerðir voru gerðar hafa þær valdið alvarlegum og ævilöngum skaða.
Alsalem mælir með því að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna banni trans-hugmyndafræðilegar meðferðir og félagsleg umskipti barna yngri en 18 ára. Þetta er ekki aðeins höfnun á hugmyndafræði trans-fólks heldur staðfesting á öllu því sem andstæðingar trans-hugmyndafræðinnar hafa sagt í áratug.
Höldum einkarýmum
Hún talar einnig fyrir því í skýrslunni að takmarka eigi rými eingöngu fyrir konur og varar við því að trans-aktívistar hafi grafið undan bæði málfrelsi og trúfrelsi í árásum sínum á konur sem eru ósammála þeim.
Þessi skýrsla gæti reynst vatnaskil í alþjóðlegri umræðu um hugmyndafræði og stefnu trans-fólks. Það er vissulega höfnun á mörgu af því sem aðgerðasinnar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa reynt að áorka á síðustu 10 árum – og það er ótrúlega hvetjandi.