Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir nýjar niðurstöður PISA könnunarinnar sláandi og óttast grafalvarlegar afleiðingar fyrir þær kynslóðir sem nú vaxa úr grasi.
Niðurstöðurnar sýna að íslenskir nemendur standa nú verr en jafnaldrar þeirra á öllum hinum Norðurlöndunum og undir meðaltali OECD í lesskilningi, stærðfræði og vísindum. Árangurinn hefur aldrei mælst verri og hélt áfram að versna frá könnuninni árið 2022.
„Á einhvern undraverðan hátt hefur íslenska skólakerfið dregist aftur úr með fordæmalausum hætti á veraldarsviðinu á örfáum árum, með ófyrirséðum, mögulega grafalvarlegum afleiðingum fyrir þær kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi,“ skrifar Snorri.
Tæpur helmingur nær ekki grunnfærni í lestri
Íslenskir nemendur fengu að meðaltali 422 stig í lesskilningi, 450 stig í stærðfræði og 441 stig í vísindum.
Aðeins 56 prósent íslenskra 15 ára nemenda náðu þeirri grunnhæfni í lesskilningi sem OECD telur nauðsynlega til fullrar þátttöku í samfélaginu. Meðaltalið innan OECD var 69 prósent.
Staðan er sérstaklega slæm meðal drengja. Aðeins helmingur þeirra náði grunnviðmiðinu í lesskilningi, samanborið við 62 prósent stúlkna.
Alls náðu 1.148 íslenskir nemendur, eða 28 prósent þeirra sem tóku þátt, ekki grunnhæfni í neinu af kjarnasviðunum þremur. Á öðrum Norðurlöndum var hlutfallið að meðaltali 18 prósent.
Frá árinu 2015 hefur árangur íslenskra nemenda fallið um 59 stig í lesskilningi, 38 stig í stærðfræði og 32 stig í vísindum. Hlutfall nemenda sem nær grunnfærni í lestri hefur minnkað um 22 prósentustig á aðeins áratug.
Segir fyrri ríkisstjórnir hafa sofið á verðinum
Snorri segir fyrri ríkisstjórnir hafa sofið á verðinum og telur nýja ríkisstjórn ekki hafa sýnt að henni sé alvara með að snúa þróuninni við.
Hann gagnrýnir stöðug ráðherraskipti, óljósa stefnu og boðaðan niðurskurð á greiðslum til höfunda sem skrifa bækur á íslensku.
„Á köflum hefur það hreinlega verið farsakennt en maður er alveg hættur að hafa húmor fyrir þessu,“ segir hann.
Snorri telur snjallsíma aðeins hluta af skýringunni. Einnig verði að endurskoða hugmyndafræðina sem hafi mótað skólakerfið á síðustu árum.
Þar nefnir hann skóla án aðgreiningar, aukið uppeldishlutverk skólanna á kostnað grunnfaga, agaleysi, lækkaðar kröfur og tregðu til að mæla raunverulega stöðu nemenda og takast á við niðurstöðurnar.
Mikill munur eftir bakgrunni
Snorri bendir jafnframt á fordæmalausan fjölda barna af erlendum uppruna og segir það skapa álag sem íslenska skólakerfið hafi ekki verið hannað til að mæta. Vandinn bitni bæði á erlendu börnunum sjálfum og öðrum nemendum.
PISA skýrslan sýnir mikinn mun eftir bakgrunni. Aðeins 28 prósent nemenda sem flokkast sem innflytjendur ná grunnfærni í lesskilningi, samanborið við 63 prósent íslenskra nemenda.
Meðal fyrstu kynslóðar innflytjenda er hlutfallið aðeins 16 prósent en 34 prósent meðal barna innflytjenda sem fædd eru á Íslandi. Fram kemur í skýrslunni að munurinn í lesskilningi eftir bakgrunni hafi aukist marktækt frá síðustu könnun.
Ráðherra segir Ísland vera á botninum
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir niðurstöðurnar sýna að Ísland sé með „rauða spjaldið“ í námsárangri barna.
„Við erum komin á botninn, við ætlum ekki að dvelja þar lengur,“ sagði hún þegar niðurstöðurnar voru kynntar.
Stjórnvöld ætla meðal annars að leggja 455 milljónir króna í ný námsgögn, auka áherslu á íslensku, stærðfræði og vísindi, endurskoða námskrá og efla stuðning við nemendur af erlendum uppruna.
Snorri segir hins vegar þurfa að ganga mun lengra og endurskoða fjölmarga þætti skólakerfisins frá grunni.
„Leita þarf aftur í kjarna góðs skólastarfs, sem virðist stundum gleymast í öllu umrótinu,“ segir hann.