Snorri segir umræðuna hafa færst alltof langt til vinstri – Segir „aktivistana á Heimildinni“ beita vafasömum aðferðum

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, birti í gær færslu og myndband á Facebook þar sem hann gagnrýnir harðlega viðbrögð við grein sem hann skrifaði nýlega um þróun í innflytjendamálum og hlutfallslega fjölgun erlendra ríkisborgara á Íslandi.

Hann segir umræðuna um málið hafa færst langt til vinstri og að fjölmiðlar beiti „vafasömum merkimiðum“ til að stöðva eðlilega umræðu.

„Ekki kenning heldur tölfræðileg staðreynd“

Auglýsing

Í myndbandinu segir Snorri að hann hafi verið í viðtali á RÚV deginum áður og að umræðan þar hafi orðið „skrítnari en hann hafi gert sér grein fyrir í miðjum klíðum“.

Hann útskýrir að forsagan sé grein sem hann skrifaði þar sem hann fjallar um að Íslendingar gætu, að óbreyttu, orðið í minnihluta í eigin landi á næstu áratugum.

„Aktivistarnir á Heimildinni voru ekki lengi að finna bara einhvern gaur sem verður að segja rasísk samsæriskenning — The Great Replacement Theory,“ segir Snorri í myndbandinu og bætir við að um sé að ræða tölfræðilega staðreynd, ekki samsæriskenningu.

Deildi vettvangi með Friðjóni Friðjónssyni

Í viðtalinu á Rás 2 tók Friðjón Friðjónsson, sjálfstæðismaður og ráðgjafi, þátt í umræðunni með Snorra.

Friðjón sagði kenninguna um að verið væri að „skipta út“ þjóðinni vera rasíska að eðlisfari og að sú kenning ætti uppruna sinn í gyðingahatri.

Snorri svaraði því að þetta væru ekki kenningar heldur tölfræðilegar staðreyndir um hlutfall innflytjenda.

Hann lagði áherslu á að gagnrýni sín snerist ekki gegn útlendingum heldur íslenskum stjórnvöldum.

„Það er ekkert verið að kenna útlendingunum um þetta, heldur íslenskum stjórnvöldum,“ sagði hann.

Segir umræðuna hafa orðið „ótrúlega vinstrisinnaða“

Þáttastjórnandi fullyrti í kjölfarið að ummæli Snorra gætu „dansað á kynbótastefnu-línu“, sem Snorri hafnaði alfarið.

„Mér finnst það vafasamt að stimpla mína umræðu sem einhvers konar kynbótastefnu eða eitthvað annað,“ sagði hann og bætti við að umræðan hefði færst „ótrúlega langt til vinstri“.

Í lok myndbandsins hvetur Snorri fylgjendur sína til að horfa á viðtalið sjálft og mynda sér eigin skoðun á því hvernig umræðan hafi verið.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing