Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur skráð 72 mál í LÖKE en eitthvað var um aðstoðarbeiðni vegna veikinda og svo vegna fólks í annarlegu ástandi þennan fimmtudaginn. Nútíminn birtir hér verkefni lögreglu eins og þau birtast í dagbók lögreglunnar og skipt niður eftir hverfum.
Lögreglustöð 1 – Austurbær – Miðbær – Vesturbær – Seltjarnarnes:
Tilkynnt um innbrot í hverfi 107, gluggi spenntur upp og farið inn, lítur út fyrir að engu hafi verið stolið
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 101, afgreitt á vettvangi
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 108, afgreitt á vettvangi
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður – Garðabær – Álftanes
Tilkynnt um eignarspjöll á þremur bifreiðum í hverfi 221, ekki vitað hver gerandi er
Ökumaður stöðvaður í hverfi 221 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku
Einn handtekinn í hverfi 221 vegna gruns um vörslu og sölu fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku
Ökumaður stöðvaður í hverfi 210 grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, laus að lokinni blóðsýnatöku
Lögreglustöð 3 – Kópavogur – Breiðholt:
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 201, afgreitt á vettvangi
Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 201, afgreitt á vettvangi
Einn handtekinn í hverfi 200 vegna gruns um vörslu fíkniefna, vistaður í fangageymslu
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur – Mosfellsbær – Árbær:
Skráningarnúmer tekin af bifreið í hverfi 110 vegna vanrækslu á aðalskoðun