Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir nú opinberlega Þorstein V. Einarsson, kynjafræðing og stjórnanda miðilsins Karlmennskan, vegna texta sem hann birti á samfélagsmiðlum um kyn og kyngervi í sögulegu samhengi.
Í textanum sem Karlmennskan birti segir meðal annars:
„Kynin hafa aldrei verið bara tvö nema í takmörkuðum hugarheimi trúarofstækismanna. Fyrir tíma nýlenduherrra og innrætingar kirkjunnar á einfældningslegum túlkunum á fornum texta blómstruðu fjölmörg kyn og kyngervi. Á Indlandi, í Norður-Ameríku, Arabalöndum og víðar fékk fólk að vera það sjálft.“

Í framhaldinu stendur:
„Ekki bara fékk fólk frelsið til að vera það sjálft heldur nutu sum kyn, utan tvíhyggjunnar, félagslegrar og formlegrar viðurkenningar innan samfélaga. En það var fyrir tíma afturhaldssamra þingmanna, kúgunar og innrætingar ‘hinna réttu’ hugmynda.“

Sólveig Anna segir þessi skrif einfaldlega vera rangfærslur.
Í færslu á Facebook lýsir hún textanum sem áróðri póstmódernískra, „a-historical“ hugmynda og segir Þorstein hafa fengið átta milljónir króna í styrk frá Jafnréttissjóði Íslands árið 2020 fyrir verkefni sem hún telur byggjast á bulli.
„Áróðurs ‘meistari’ póst-módernískra, a-historical, rad-libba gilda fékk víst 8 milljónir frá stjórnvöldum,“ skrifar hún og bætir við:
„Og svo efast fólk um að vókið sé top-down hugmyndafræði nýtt af valdinu til að afvegaleiða alþýðufólk með því að láta sem hugarórar furðufugla séu sannansti sannleikurinn.“
Spyr hvort „hvítir, vestrænir cis-karlar“ eigi að fjalla um menningu annarra
Í efsta kommenti við færsluna spyr Sólveig Anna svo hvort fólki finnist eðlilegt að „hvítur, vestrænn, cis-karl“ tjái sig um sögu og menningu fólks í öðrum heimshlutum.
„Finnst fólki í lagi að hvítur, vestrænn, cis-karl bulli um sögu og menningu fólks í öðrum heimshlutum og ef svo, hversvegna?“ spyr hún.
Fjörug umræða hefur myndast við færsluna og er óhætt að segja að ekki séu allir sammála um innihald hennar.