Myndband sem farið hefur eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla sýnir þegar Raja Jackson, sonur fyrrum UFC meistarans Quinton „Rampage“ Jackson, ræðst grimmilega á fjölbragðaglímumann á sviði í Los Angeles um helgina.
Á upptökunni sést Raja hlaupa inn í hringinn, fella glímumanninn Stuart Smith, sem gengur undir nafni Syko Stu, og síðan kýla hann ítrekað þar sem hann lá meðvitundarlaus á gólfinu.
Fór úr böndunum
Atvikið átti sér stað í KnokX Pro Wrestling Academy, þar sem glímuuppákomur eru venjulega skipulagðar og leiknar.
Samkvæmt yfirlýsingu frá akademíunni æxluðust hlutirnir þannig að Syko Stu hélt að Jackson væri hluti af þeim sem áttu að sýna seinna um kvöldið og sló hann í höfuðið með bjórdós sem var leikmunur.
Jackson tók þessu mjög illa og baðst Syko Stu afsökunar þegar hann komst að því að hann var ekki meðal keppenda kvöldsins.
Jackson virtist taka afsökunarbeiðninni og var meira að segja sagt af skipuleggjendum viðburðarins að hann mætti stökkva inn í hringinn þegar Syko Stu væri að keppa og „taka aðeins í hann.“
Með því meintu þeir að Jackson myndi draga úr höggum sínum og taka þátt í sýningunni, sem Jackson samþykkti.
Spjallið gerði hann trylltan
Þegar leið að augnablikinu sést þegar Jackson, sem var að streyma í beinni útsendingu, byrjar að lesa spjallið þar sem hann var kallaður aumingi og raggeit fyrir að láta „fituhlunk“ taka svona í sig.
Við þetta espast hann allur upp og þegar hann fer svo inn í hringinn fór Raja Jackson út fyrir handritið og beitti Smith alvarlegu ofbeldi, en hann tók hann upp og skelti honum niður og virðist Syko Stu rotast við höggið.
Jackson lætur svo höggin dynja á meðvitundarlausum manninum þar til hann er dreginn af honum.
Að sögn sjúkraflutningamanna var Stu hársbreidd frá því að drukkna í eigin blóði og tönnum sem losnuðu og fóru niður í háls hans.
Stu var hætt kominn um tíma en er nú kominn til meðvitundar.
Lögreglan í Los Angeles hefur hafið rannsókn á málinu eftir að Jackson flúði af vettvangi.
Rampage fordæmir son sinn
Quinton „Rampage“ Jackson, sem var UFC léttþungavigtarmeistari árin 2007–2008, birti yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist fordæma gjörðir sonar síns.
„Ég styð ekki aðgerðir sonar míns á nokkurn hátt,“ sagði Rampage.
Hann bætti við að þetta hafi átt að vera hluti af sviðsettri frammistöðu sem fór úr böndunum eftir að Smith hefði reitt Raja til reiði fyrr sama dag.
Rampage benti einnig á að sonur hans hefði nýlega fengið heilahristing við æfingar, en hann æfir blandaðar bardagaíþróttir eins og faðir hans, og hefði alls ekki átt að taka þátt í slíku átaki.
Saga Rampage
Rampage Jackson var einn þekktasti bardagakappi UFC frá upphafi og hefur einnig reynt fyrir sér sem leikari, meðal annars í kvikmyndinni The A-Team frá árinu 2010.
Sonur hans Raja, 25 ára, er sjálfur bardagamaður en hefur aðeins barist einu sinni í MMA, árið 2023, þar sem hann tapaði.