Sósíalistaflokkurinn hjólar í fyrri forystu vegna meints fjármálamisferlis – Vísar í nýja umfjöllun fjölmiðla um fjármál flokksins

Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að fjölmiðlar fjalli nú um þau atriði sem ný forysta flokksins hefur ítrekað bent á varðandi fjármál og innri starfsemi flokksins á árum áður.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem framkvæmdastjórnin sendi frá sér.

Auglýsing

Þar er því haldið fram að í tíð fyrrverandi forystu, undir stjórn Gunnars Smára Egilssonar og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, hafi fjármunir flokksins verið fluttir nær samdægurs yfir í félög sem tengdust Samstöðinni, Alþýðufélagið og Vorstjörnuna.

Að mati núverandi stjórnar hafi þetta fyrirkomulag verið til þess fallið að torvelda yfirsýn almennra flokksfélaga yfir raunverulega fjárhagsstöðu flokksins.

Fullyrt að fjármunir hafi horfið úr flokksstarfi

Í tilkynningunni segir að félögin sem um ræðir hafi verið notuð til að „fóðra einkarekinn vinnustað og launatékka“ fyrir fyrrverandi formann framkvæmdastjórnar, án þess að fjármunirnir skiluðu sér í hefðbundið flokksstarf eða undirbúning kosningabaráttu.

Jafnframt er því haldið fram að fyrrverandi forysta hafi tekið þessi félög og þá fjármuni sem þar voru, með sér eftir að hún tapaði í fyrstu lýðræðislegu stjórnarskiptum í sögu flokksins á aðalfundi í fyrra.

Ný forysta segir stöðuna hafa snúist við

Framkvæmdastjórnin leggur áherslu á að gagnrýni nýrrar forystu hafi einmitt snúið að þessari meintu ógegnsæju og vafasömu meðferð fjármuna.

Sú meðferð hafi skilið flokkinn eftir með lítið svigrúm til eðlilegs reksturs.

Í tilkynningunni segir jafnframt að nú hafi orðið algjör viðsnúningur.

Flokkurinn hafi skilað átta milljóna króna hagnaði, þrátt fyrir umfangsmikið fundar- og viðburðahald og mjög virkt flokksstarf á síðasta ári.

Ný forysta segist því ganga vel undirbúin til kosninga, bæði fjárhagslega og skipulagslega, með virka og fjölmenna grasrót.

„Ærin verkefni framundan“

Að lokum segir framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands að verkefnin framundan séu stór, meðal annars endurreisn félagslegra innviða samfélagsins og aukið réttlæti í húsnæðismálum.

Að mati stjórnarinnar hafi flokkurinn nú loks burði til að takast á við þau markmið af fullum krafti.

Tilkynningin í heild sinni:

Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands fagnar því að fjölmiðlar eins og Vísir segi nú frá því sem ný forysta Sósíalistaflokks Íslands hefur bent á ítrekað.

Fjármagni flokksins var í áraraðir í tíð fyrrverandi forystu Gunnars Smára Egilssonar og Sönnu Magdalenu Mörtudóttur ferjað nær samdægurs út úr flokknum og yfir í hliðar- og skúffufélög Samstöðvarinnar, Alþýðufélagsins og Vorstjörnunnar.

Öll voru þessi félög sniðin að því að koma í veg fyrir yfirsýn og innsýn félaga í fjárhagsstöðu flokksins og fóðra einkarekinn vinnustað og launatékka fyrir fyrrverandi formann framkvæmdastjórnar.

Gunnar og Sanna tóku svo þessi félög og fjármuni sem þar voru með sér eftir að þau guldu afhroð í fyrstu lýðræðislegu stjórnarskiptum í sögu flokksins. Framkvæmdastjórn vill árétta það að ein helsta gagnrýni nýrrar forystu sneri einmitt að þessari ógegnsæju og vafasömu meðferð fjármuna. Meðferð sem skildi ekkert eftir í flokksstarf né fjármögnun kosningabaráttu.

Nú eru hins vegar nýjir tímar. Sósíalistaflokkur Íslands skilar 8 milljón króna hagnaði þrátt fyrir nær óslitið fundar- og viðburðahald undanfarið ár og gríðarlega virkt flokksstarf. Við göngum því fílefld fram til kosninga; vel fjármögnuð, skipulögð og með virkri fjölmennri grasrót loks við stjórnvölinn.

Ekki seinna vænna enda ærin verkefni framundan við endurreisn félagslegra innviða samfélagins og réttlætis í húsnæðismálum. Framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands.

https://www.visir.is/g/20262832691d/sosialistar-sendu-naer-allar-tekjur-i-felog-tengdum-fyrri-stjorn

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing