Spjallað við hina látnu í gegnum gervigreind – Persónulegri sorg breytt í leikverk

Álfrún Gísladóttir var gestur í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni þar sem hún ræðir um nýtt og afar persónulegt leikverk sitt, Dead Air. Verkið verður sýnt í Tjarnarbíói 4. og 5. mars og byggir á reynslu hennar eftir að hafa misst föður sinn fyrir tæpum þremur árum.

Í viðtalinu er fjallað um þróun þar sem fyrirtæki bjóða upp á að endurvekja látna einstaklinga með gervigreind. Með því að hlaða inn skilaboðum, tölvupóstum, myndböndum og öðrum stafrænum gögnum er hægt að búa til spjallmenni sem hermir eftir viðkomandi.

Siðferðilegar spurningar

Auglýsing

Frosti spurði Álfrúnu hvort hún hefði sjálf prófað að hlaða inn gögnum um föður sinn til að geta talað við hann í gegnum gervigreind.

„Mér fannst það ekki vera rétt fyrir mig,“ sagði hún og útskýrði að hún hefði glímt við siðferðilegar spurningar um samþykki og notkun gagna. „Ég spurði mig hvort hann myndi vilja það. Það er líka vandamál ef þú ert ekki búinn að samþykkja að gögnin þín séu notuð þannig.“

Hún sagðist hafa kynnt sér málið ítarlega, horft á heimildarmyndir og skoðað mismunandi lausnir sem þegar eru í notkun. Þar nefndi hún spjallforrit á borð við Project December og You Only Virtual, auk suður kóresks verkefnis sem kallast Rememory og getur búið til svokölluð deepfake myndbönd þar sem látin manneskja virðist tala beint til ástvina.

Frosti viðurkenndi að hann hefði ekki gert sér grein fyrir að slíkar lausnir væru þegar orðnar aðgengilegar almenningi. Hann sagðist þó hafa séð auglýsingar á samfélagsmiðlum þar sem gamlar ljósmyndum eru gæddar lífi með gervigreind.

„Það er ríkt í manni þegar maður saknar einhvers að vilja ná þessari tengingu,“ sagði hann.

Álfrún benti á að þráin eftir sambandi við látna ástvini sé ekki ný af nálinni.

„Af hverju erum við með drauga? Við höfum frá fornu fari reynt að tala við látna á mismunandi hátt.“

Hamlet með Wi-Fi

Leikverkið Dead Air er skrifað og flutt af Álfrúnu sjálfri og lýst sem blöndu af svörtum húmor og tilfinningaþrunginni frásögn. Í kynningu á verkinu segir að það sé „Hamlet, en með meira Wi-Fi og færri tjöldum“ og fjalli um sorg, drauga og stafræna þráhyggju.

Verkið hefur vakið athygli erlendis og hlotið lof í breskum fjölmiðlum, þar á meðal í The Guardian og The Scotsman, þar sem frammistaða Álfrúnar hefur verið sögð bæði áhrifamikil og hugmyndarík.

Sýningar fara fram í Tjarnarbíói miðvikudaginn 4. mars og fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:00. Verkið er ætlað 16 ára og eldri.

Hægt er að nálgast miða hérna.

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing