Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, birtir harðorða færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann fer yfir alvarleguar ásakanir sem upp hafa komið í kjölfar þess að skólastjóri var ekki endurráðinn í starfi.
Ástæðan, að sögn skólastjórans sjálfs, tengist símtali frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, vegna barnabarns hennar.
Segir ráðherra hafa öskrað og sakað starfsfólk um leti
Í frásögn skólastjórans kemur fram að Inga hafi hringt í janúar og verið „ekki í neinu jafnvægi“.
Hún hafi, samkvæmt lýsingu hans, öskrað í símann, sakað starfsfólk skólans um leti og krafist skýringa á því hvers vegna glænýjir Nike skór barnabarns hennar hefðu ekki fundist.
Hann segir að samskiptin hafi verið svo óvenjuleg að hann hefði talið hana drukkna ef hann hefði verið spurður í kjölfarið.
Auk þess er haft eftir skólastjóranum að ráðherra hafi sjálfur sagt í samtali að hann gæti hringt í lögreglu vegna málsins, þar sem hann hefði þar „ítök“.
Krefst svara um vinnubrögð menntamálaráðherra
Snorri segir að eini skólastjórinn sem ekki var endurráðinn hafi verið þessi starfsmaður og að hann telji ástæðu til að skoða hvort samskiptin við Ingu Sæland hafi haft áhrif á niðurstöðuna.
Skólastjórinn sjálfur telur líklegt að málið tengist bæði símtalinu og gagnrýni hans á ríkisstjórnina.
Kristín, sem Snorri ræddi um í færslunni, hafnar því alfarið að atvikið tengist pólitík. Hún segir um faglega ákvörðun að ræða og að hvert mál verði að meta fyrir sig.
„Rugl í menntamálaráðuneytinu“
Snorri gagnrýnir harðlega það sem hann kallar rugl í menntamálaráðuneytinu á tímum þegar stór skref þurfi að taka í stefnumótun menntamála.
Hann spyr hvort forsætisráðherra hafi engar áhyggjur af stöðu mála, sérstaklega í ljósi þess að samkvæmt frásögn skólastjórans séu þarna á ferðinni ásakanir á hendur ráðherra um óeðlileg samskipti og áhrif.
„Við eigum að vera að sækja fram með djörfum og vönduðum skrefum í menntamálum,“ segir Snorri, „en í stað þess sé rugl að koma úr ráðuneytinu.“
Ég spyr mig hvort Kristrún Frostadóttir hafi ekki áhyggjur af því, á tímum þar sem við ættum að vera að sækja fram með djörfum skrefum og metnaðarfullri stefnu í menntamálum, að í staðinn sé þetta rugl að koma úr menntamálaráðuneytinu? pic.twitter.com/LjxfvLDmVF
— Snorri Másson (@5norri) December 4, 2025