Harðrar gagnrýni gætir á bréf sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sendi Evrópusambandinu í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst.
Í bréfinu greinir ráðherra frá því að meirihluti þjóðarinnar hafi hafnað því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og muni því ekki vinna að því að viðræðurnar hefjist á ný.
Um leið tekur ráðherrann sérstaklega fram að staða aðildarferlis Íslands verði óbreytt. Orðalagið í bréfinu er eftirfarandi:
„My government respects the outcome of the referendum and will therefore not pursue the resumption of accession negotiations while the status of our accession process remains unaffected.“
Þetta þýðir að þótt viðræðurnar verði ekki hafnar að nýju hefur ríkisstjórnin ekki óskað eftir því að formlegri stöðu aðildarumsóknar Íslands gagnvart Evrópusambandinu verði breytt.
„Allt óbreytt eftir lýðræðisveisluna“
Glúmur Björnsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir bréfið harðlega á X og segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar engu hafa breytt um formlega stöðu Íslands:
„Utanríkisráðherra tilkynnir Evrópusambandinu að allt sé óbreytt eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, sjálfa lýðræðisveisluna. Ísland verður áfram umsóknarríki að ESB þótt meirihluti kjósenda hafi ekki svo mikið sem áhuga á að ræða slík mál við sambandið.“
Utanríkisráðherra tilkynnir Evrópusambandinu að allt sé óbreytt eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, sjálfa lýðræðisveisluna.
Ísland verður áfram umsóknarríki að ESB þótt meirihluti kjósenda hafi ekki svo mikið sem áhuga á að ræða slík mál við sambandið. pic.twitter.com/oRlLJjF5Mt
— Glúmur Björnsson (@GlumurBjornsson) September 9, 2026
Glúmur birti með færslunni skjáskot af þeim hluta bréfsins þar sem setningin um óbreytta stöðu aðildarferlisins hafði verið auðkennd.

„Hugsið ykkur virðingarleysið gagnvart þjóðinni“
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók í sama streng á Facebook. Hann segir það fela í sér virðingarleysi gagnvart kjósendum að halda stöðu umsóknarinnar óbreyttri eftir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
„Hugsið ykkur virðingarleysið gagnvart þjóðinni!
Þjóðin hafnaði því skýrt að aðildarumsókn að Evrópusambandinu yrði tekin til frekari skoðunar. Samt hefur utanríkisráðherra nú tilkynnt sambandinu að Ísland verði áfram umsóknarríki.
Þetta var þá öll lýðræðisveislan: Þjóðin fékk að kjósa – svo lengi sem ráðherrarnir fengju að ráða niðurstöðunni.“
„Brennum ekki brýrnar“
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, svaraði Elliða í athugasemd við færsluna og hvatti til varfærni:
„Brennum ekki brýrnar á undan okkur …“
Elliði svaraði honum með vísu:
„Brennum ekki brýrnar á undan okkur,
brjótum ei gegn þjóðarvilja.
Það væri víst sannur drullusokkur
sem sýndi ei vilja til að skilja.
(þú átt næsta erindi :))“
Segir náið samstarf halda áfram
Í bréfi sínu leggur Þorgerður Katrín jafnframt áherslu á að áfram verði náið samstarf milli Íslands og Evrópusambandsins. EES-samningurinn verði áfram hryggjarstykkið í samskiptunum ásamt Schengen-samstarfinu.
Ráðherrann lýsir einnig vilja til að efla samstarf við ESB á sviði öryggis- og varnarmála, norðurslóða, sjávarútvegsmála og málefna hafsins. Þá áréttar hún áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu og samstöðu með refsiaðgerðum Evrópusambandsins gegn Rússlandi.
Deilan snýst því ekki um hvort ríkisstjórnin hyggist hefja aðildarviðræður að nýju á þessu kjörtímabili – í bréfinu segir skýrt að það verði ekki gert. Ágreiningurinn snýst um hvers vegna staða aðildarferlisins skuli látin óbreytt eftir að meirihluti kjósenda hafnaði áframhaldandi viðræðum.