Stærsta svikamylla sögunnar? – Grunur um að rúmum 9 milljörðum dollara hafi verið stolið úr velferðarkerfi Minnesota

Alríkisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú það sem gæti verið stærsta svikamylla sögunnar en hún tengist velferðarkerfinu í Minnesota í Bandaríkjunum.

Samkvæmt mati saksóknara gæti allt að 9 milljörðum dollara hafa verið stolið úr opinberum velferðar- og félagskerfum ríkisins, að stærstum hluta af aðilum úr sómalska samfélaginu í Minnesota.

Auglýsing

Saksóknarar segja að svikin geti numið um helmingi alls þess fjármagns sem alríkisstjórnin hefur veitt Minnesota til félagsþjónustu frá árinu 2018.

Fyrra mat hljóðaði upp á um 1 milljarð dollara, en ný gögn hafa margfaldað þá tölu.

Leikskólar nýjasta svikamyllan

Undanfarna daga hefur sviðsljósið beinst að leikskólum eftir að rannsóknarblaðamaðurinn Nick Shirley, sem vinnur sjálfstætt á YouTube, birti fjölda myndbanda þar sem hann sagðist hafa flett ofan af kerfisbundinni svikamyllu sem tengist vistun barna Minnesota.

Myndböndind fóru umsvifalaust af stað um samfélagsmiðla og hafa fengið hundruð milljónir áhorfa.

Í myndbandinu fer Shirley ásamt öðrum aðila í heimsóknir í tugi dagvistana sem þiggja opinbert fé.

Samkvæmt Shirley og manninum sem kemur fram í myndbandinu voru um 50 slík heimili heimsótt, flest rekin af Sómölum, án þess að eitt einasta barn væri á staðnum, hvorki að morgni, síðdegis né að kvöldi.

Að sögn þeirra sem komu að upptökunum fá sumar þessara stofnana að meðaltali um 2,5 milljónir dollara á ári í opinberar greiðslur en við hverja slíka stofnun draga þeir upp tölur sem fengnar eru af opinberri síðu Minnesota fylkis sem segir nákvæmlega til um hversu mikið hver slík stofnun hefur fengið af opinberu fé seinustu ár.

Eitt málið þykir sérlega vandræðalegt en þar heimsækja Shirley og annar aðili skóla fyrir börn þar sem engin börn eru sjáanleg, með stóru skilti fyrir utan sem á stendur „Learing center“ en á að sjálfsögðu að standa „Learning center.“

Þetta skilti hefur vakið mikla kátínu netverja sem hafa gert mikið grín að atvikinu.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Nick Shirley (@nickshirley)

Yfirvöld í Minnesota segja að bein sönnun fyrir svikum liggi ekki fyrir í öllum tilvikum, en viðurkenna að myndbandið hafi hraðað rannsóknum og varpað ljósi á alvarlega veikleika í eftirlitskerfi fylkisins.

Hluti af víðtækara svikamynstri í Minnesota

Dagvistunarmálin eru nú rannsökuð í samhengi við umfangsmikla rannsókn á svikum sem tengjast félagsþjónustunni í Minnesota, þar á meðal ‚Feeding Our Future‘ hneykslið.

Þar var ríkið rukkað um hundruð milljóna dollara fyrir mataraðstoð við börn sem saksóknarar segja aldrei hafa verið veitta.

Í þeim málum hafa tugir einstaklinga verið sakfelldir, langflestir úr sómalska samfélaginu í Minnesota, þó einnig komi aðilar af öðrum uppruna við sögu.

Féð var að sögn rannsakenda notað í lúxusbíla, fasteignir, dýrar ferðir en einnig var gífurlegt magn af fé flutt úr landi.

Aðstoðarsaksóknari Bandaríkjanna hefur lýst þessu sem „kerfisbundinni svikastarfsemi á skala sem aldrei hefur sést áður“ og nái yfir fjölmörg kerfi samtímis.

Kann aðeins að vera toppurinn á ísjakanum

Að lokum benda nýjar upplýsingar til þess að Minnesotamálið kunni aðeins að vera hluti af stærra vandamáli á landsvísu.

Nú er verið að skoða hundruð dagvistunarstöðva í öðrum fylkjum Bandaríkjanna, meðal annars í Washington ríki, sem sagðar eru reknar af Sómölum og þiggja opinbert fé.

Samkvæmt upplýsingum sem hafa komið fram eru sumar þessara dagvistana skráðar án heimilisfangs, með óljósan eða engan opnunartíma, en fá engu að síður niðurgreiðslur úr opinberum sjóðum.

Þá hafa sprottið upp síður sem benda á slíka starfsemi í bæði Massachusets og Kaliforníu.

Alríkisyfirvöld hafa ekki staðfest allar þessar fullyrðingar, en rannsóknir eru sagðar hafnar í fleiri fylkjum en FBI hefur rokið í málið strax eftir þessar uppljóstranir, enda þykir málið eitthvað það vandræðalegasta sem komið hefur upp í landinu.

Reynist grunsemdir réttar gæti verið um að ræða eina umfangsmestu svikamyllu sem afhjúpuð hefur verið í heiminum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing