Ný rannsókn hefur vakið mikla athygli í Bretlandi eftir að fram komu alvarlegar ásakanir um að ólöglegar vape verslanir hafi boðið börnum rafrettur í skiptum fyrir kynferðislega greiða. Börn allt niður í 11 ára aldur eiga að hafa fengið slíkar tilboð samkvæmt upplýsingum sem fram komu í umfjöllun Channel 4 News.
Börn sögð hafa verið flutt á óþekkta staði
Rannsóknarteymi í West Midlands segir að merki hafi komið fram um tengsl slíkra verslana við skipulagða glæpastarfsemi. Samkvæmt starfsmönnum eftirlitsins hafa einnig borist upplýsingar um að börn, allt niður í 12 ára, hafi verið sótt á bílum frá verslunum og flutt á óþekkta staði af mönnum sem tengjast rekstrinum.
Einn skipuleggjandi rannsóknarinnar sagði í viðtali að hann hefði nýlega orðið vitni að því að 11 ára barn keypti rafrettu í verslun. Hann sagði slíkt vera viðbjóðslegt og alvarlegt brot.
Samstarfsmaður hans sagði að við leitir á starfsmönnum verslana hefðu stundum fundist mikið af smokkum í vösum þeirra. Í einu tilviki fannst einnig bók skrifuð á kúrdísku sem hafði verið þýdd og innihélt enskar setningar á borð við „þú ert falleg“, „ég elska hárið þitt“ og „þú ert ung og falleg“.
Eftirlitið greip til aðgerða gegn vape verslunum á svæðinu síðasta sumar eftir að upplýsingar bárust um hugsanleg brot. Verslanirnar höfðu margar hverjar verið staðnar að því að selja börnum, sem notuð voru sem tálbeitur, rafrettur án þess að spyrja um aldur.
Tengsl við skipulagða glæpastarfsemi
Samkvæmt upplýsingum tengjast sumir þessara verslunareigenda einstaklingum sem hafa verið skráðir hjá lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot, ofbeldi og vopnalagabrot.
Yfirvöld halda því fram að rafrettur séu í auknum mæli notaðar af vafasömum mönnum til að lokka viðkvæm börn til sín, þó þeir vilji ekki ganga svo langt að halda því fram að um sé að ræða mál sem kemst nálægt umfangi pakistönsku nauðgunargengjanna.
Hundruð handtekin í aðgerðum gegn glæpahópum
Í nóvember 2025 voru yfir 920 manns handteknir í samræmdum aðgerðum lögreglu og yfirvalda víðs vegar um Bretland. Þar var ráðist í umfangsmiklar húsleitir og eftirlit með verslunum, hárgreiðslustofum, vape verslunum og veitingastöðum.
Í aðgerðunum voru um 3.000 slíkir vinnustaðir heimsóttir og milljónir ólöglegra smáhluta gerðir upptækir ásamt um 70 kílóum af kannabis.
Samkvæmt mati National Crime Agency er talið að velta ólöglegrar starfsemi af þessu tagi sé um 12 milljarðar punda árlega.