Stefán Máni segir höfunda eiga rétt á greiðslu fyrir hvert útlán – „Hættu að væla og gerðu eitthvað af viti“

Stefán Máni rithöfundur gagnrýnir harðlega fyrirhugaðan niðurskurð á Bókasafnssjóði höfunda og segir greiðslur úr honum hvorki vera styrki né ölmusu. Þær séu greiðsla fyrir afnot almenningsbókasafna af verkum höfunda og skerðingin því bein tekjulækkun fyrir stéttina.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 á framlag til sjóðsins að lækka úr 224,5 milljónum króna í 142,3 milljónir. Munurinn er rúmar 82 milljónir króna eða tæplega 37 prósent.

Auglýsing

„Greiðslur úr bókasafnssjóði eru ekki styrkir eða ölmusa eða listrænar örorkubætur,“ skrifar Stefán Máni í færslu á Facebook.

Bókasöfnin láni bækurnar endalaust út

Stefán segir bókasöfn kaupa hvert eintak einu sinni en lána það síðan aftur og aftur. Sú þjónusta við almenning sé að hluta til á kostnað höfunda sem verði af sölu bóka.

„Það er sem sagt verið að bæta okkur ákveðinn skaða og greiða fyrir endalaus afnot af bókunum. Við erum einfaldlega að fá greitt fyrir okkar vinnu og framlag til bókmennta, og launin eru lág og fara nú lækkandi.“

Bókasafnssjóður er deilisjóður og ræðst greiðslan fyrir hvert útlán af því hversu mikið fé er til ráðstöfunar. Árið 2026 var rúmum 213,7 milljónum króna úthlutað til 930 höfunda og rétthafa. Greiðslan nam 172 krónum fyrir hvert útlán ársins 2025.

Fái niðurskurðurinn samþykki Alþingis mun minna fé því standa til skiptanna milli höfunda og rétthafa á næsta ári.

Segir sjóðinn lausari við klíkuskap

Stefán ber greiðslurnar saman við listamannalaun og segir Bókasafnssjóð byggja á mun einfaldara og réttlátara fyrirkomulagi.

„Engin útlán, engin greiðsla. Mörg útlán, greiðsla í boði. Þetta þýðir að vinsælir höfundar fá hærri tekjur en óvinsælir höfundar, og er það vel.“

Hann segir greiðslurnar úr Bókasafnssjóði lausar við það sem hann kallar „klíkuskap, forréttindi, kynjakvóta og allt það snobb og kjaftæði“ sem einkenni listamannalaun.

Stefán tekur þó fram að vinsældir séu ekki sjálfkrafa mælikvarði á gæði. Vinsæl list geti engu að síður verið í hæsta gæðaflokki og nefnir meðal annars Djöflaeyjuna, Engla alheimsins, Með allt á hreinu og Stellu í orlofi sem dæmi um verk sem almenningur hafi lyft á stall.

Vill leggja listamannalaun rithöfunda niður

Ef Stefán fengi að ráða yrðu listamannalaun rithöfunda lögð niður og Bókasafnssjóður efldur um helming. Jafnframt yrði greiðsla fyrir hvert útlán ákveðin þverpólitískt og til langs tíma.

Hann hefur litla samúð með þeim rökum að ungir rithöfundar og fólk sem vinnur að sinni fyrstu bók þurfi listamannalaun til að geta skrifað.

„Nei, þeir geta bara mannað sig upp og skrifað það sem þeim langar að skrifa. Það er það sem alvöru listamenn hafa gert frá tímum varðelda. Hættu að væla, slökktu á símanum og gerðu eitthvað af viti, takk fyrir kærlega.“

Stefán ítrekar þó að hið opinbera eigi að greiða höfundum sómasamlega fyrir afnot af verkum þeirra.

„Bókmenntir eru ekki ókeypis og eiga ekki að vera ókeypis.“

Að lokum hvetur hann foreldra til að lesa fyrir börnin sín og gefa þeim bækur.

„Stjórnvöld eru ekki að fara að ala börnin okkar upp, við verðum að gera það sjálf. Minni skjár, fleiri blaðsíður.“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing