Leikkonan og samfélagsrýnirinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur skrifað færslu á Facebook þar sem hún gagnrýnir forgangsröðun stjórnvalda í ríkisfjármálum. Í færslunni beinir hún orðum sínum meðal annars að utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, og nefnir einnig til sögunnar Kristrúnu Frostadóttur, Hönnu Katrínu Friðriksson og Ingu Sæland.
Segir fjármuni finnast í vopnakaup en ekki í innviði
Steinunn Ólína setur málið upp sem einfalt heimilisbókhald. „Ef milljarður fer út, þá á milljarður að fara inn,“ skrifar hún og heldur því fram að þegar grunnkerfi samfélagsins séu svelt skjóti það skökku við að fjármagn finnist til vopnakaupa.
Að hennar mati endurspeglar slík ákvörðun meðvitaða forgangsröðun þar sem alþjóðleg ímynd ráðherra sé sett ofar því að styrkja heilbrigðiskerfi, menntun og húsnæði innanlands. Hún segir ríkisstjórn sem ráðstafar milljörðum úr sameiginlegum sjóðum án þess að tryggja samsvarandi styrkingu innviða auka verulega þrýsting á almenning.
„Peningar ríkisins eru skattfé þjóðarinnar“
Í færslunni leggur hún áherslu á að ríkisfé sé skattfé almennings og að stjórnvöld verði að fara með það af ábyrgð. Hún segir meirihluta þjóðarinnar vera andsnúinn vopnakaupum en að stjórnvöld fari engu að síður þá leið.
„Þjóð sem stendur höllum fæti getur ekki leikið stórveldi,“ skrifar hún og líkir ríkisrekstri við heimilisbókhald þar sem ekki sé hægt að gefa frá sér fjármuni sem heimilið þarf sjálft á að halda.