Stjórn Fangavarðafélags Ísland lýsir yfir þungum áhyggjum sínum af ofnýtingu fangelsa landsins.

Stjórn Fangavarðafélags Íslands sendi nýlega frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er þungum áhyggjum yfir ástandinu í fangelsum landsins.

Yfirlýsingin í heild sinni hljóðar svona:

Auglýsing

Síðastliðnar vikur hafa öll fangelsi verið yfirfull og yfirvöld brugðið á það ráð að geyma gæsluvarðhaldsfanga á lögreglustöðvum dögum saman á meðan beðið er eftir plássi fyrir þá í fangelsunum.

Slík fullnýting á klefaplássi er til þess fallin að skapa óvissu og óöryggi í rekstri fangelsanna þar sem torfellt er að flytja fanga milli staða og sveigjanleiki enginn til að bregðast við óvæntum uppákomum.

Dæmi er um að fangar sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald án takmarkanna þurfi að gista í einangrunarklefum til lengri tíma vegna ofangreinds plássleysis.

Ástand þetta bitnar ekki einungis á yfirkeyrðu starfsfólki fangelsanna heldur einnig öllum fangahópnum sem líður fyrir skerta þjónustu, athygli og eftirlit.

Á meðan svo gott sem öll laus klefapláss fara í að hýsa gæsluvarðhaldsfanga getur Fangelsismálastofnun ekki kallað inn fanga til að fullnusta dóma og enn aukast líkur á því að refsidómar dæmdra einstaklinga fyrnist. 

Stjórn FVFÍ skorar á stjórnvöld að bregðast við þessu fordæmalausa ástandi í fangelsiskerfinu svo hægt sé að tryggja öryggi og eðlilega starfsemi í fangelsum landsins.

Virðingarfyllst 
Stjórn FVFÍ 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing