Stjórnandi Facebook hópsins Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu, Melkorka Huldudóttir, segir að karlmenn beiti konur ofbeldi ef þeir sinna ekki jólaundirbúningi og heimilisstörfum til jafns við þær.
Þetta kemur fram í færslu sem hún birti í hópnum níu dögum fyrir jól.
Í færslunni hvetur Melkorka konur til að velta fyrir sér verkaskiptingu á heimilum sínum og fullyrðir að þegar karlmenn láti konur bera meginþungann af heimilisstörfum og skipulagningu, sérstaklega yfir hátíðarnar, sé um ofbeldi að ræða.
„Að ræna tíma og lífi annarra“
Melkorka segir að það sé ein tegund ofbeldis að „ræna tíma og lífi annarra með því að gera ekki sinn skerf“.
Hún telur þessa hegðun sérstaklega áberandi í tengslum við jólaundirbúning, svo sem við þrif, bakstur, skipulagningu og gjafainnkaup.
Hún spyr meðal annars hvers vegna konur séu oft þær sem kaupi gjafir fyrir fjölskyldu maka síns og sjái nær einar um undirbúning hátíðanna.
Að hennar mati sé þessi hegðun orðin of normalíseruð í samfélaginu.
Hafna hugmyndinni um að karlmenn „hjálpi til“
Í færslunni gagnrýnir Melkorka orðræðu um að karlmenn séu að „hjálpa til“ á heimilinu og segir slíkt hvorki fyndið né saklaust.
Hún heldur því fram að um meðvitaða ákvörðun sé að ræða þegar karlar sinni ekki heimilisstörfum, ekki skort á getu.
Hún bendir á að ef menn geti lært nýja hluti í námi eða starfi og sinnt þeim vel, þá geti þeir einnig sinnt heimilinu af sama metnaði.
Að hennar mati sýni slík vanræksla hversu lítils makinn sé metinn.
Óhætt er að segja að ummælin við færsluna séu af ýmsum toga og sumir sammála og aðrir ekki.
