Stórir bílaframleiðendur innkalla yfir 700 þúsund ökutæki vegna alvarlegra galla

Tveir stórir bílaframleiðendur hafa innkallað rúmlega 700 þúsund ökutæki vegna galla sem geta valdið vélarbilun, slysaáhættu og í sumum tilvikum eldhættu. Bandaríska umferðaröryggisstofnunin National Highway Traffic Safety Administration (NHTSA) tilkynnti innköllunina.

Vélarbilun og eldhætta í Nissan Rogue

Japanski framleiðandinn Nissan hefur tilkynnt um tvær aðskildar innkallanir sem samtals ná til meira en 640 þúsund ökutækja í Bandaríkjunum einum saman. Annars vegar er um að ræða árgerðir 2023 til 2025 af Nissan Rogue en samkvæmt NHTSA getur legubilun valdið því að gat myndist á vélarblokk, sem getur leitt til þess að bíllinn missir afl og aukinnar slysahættu. Í verstu tilvikum getur heit olía lekið og valdið eldhættu.

Auglýsing

Um 324 þúsund bílar falla undir þá innköllun. Umboðsaðilar munu endurforrita stýrikerfi vélar, yfirfara bilanakóða og meta hvort skipta þurfi um vél.

Seinni innköllunin nær til tæplega 319 þúsund bíla af sömu gerð, árgerðir 2024 og 2025. Þar getur bilun í gírum valdið slysahættu. Umboðsaðilar munu yfirfara og skipta út búnaðinn eftir þörfum.

Eldhætta í rafmagnsbílum frá Mercedes Benz

Þá hefur bandarískt dótturfélag þýska framleiðandans Mercedes Benz innkallað tæplega 12 þúsund rafmagnsbíla af gerðinni Mercedes Benz EQB, árgerðir 2022 til 2024.

NHTSA hefur gefið út sérstaka viðvörun um eldhættu í þeim. Háspennurafhlaða ökutækjanna getur bilað og valdið eldi, bæði þegar bíll er í akstri og í kyrrstöðu. Eigendum er ráðlagt að leggja bifreiðum utandyra og fjarri byggingum þar til viðgerð hefur farið fram og að hlaða ekki rafhlöðu umfram 80 prósent þar til búið er að lagfæra bílana. Umboðsaðilar munu skipta um rafhlöðu án endurgjalds.

Auk þess hefur Daimler Vans USA innkallað rúmlega 52 þúsund bíla af gerðinni Mercedes Benz Metris vegna mögulegrar bilunar í loftpúðastýringu sem getur haft áhrif á virkni loftpúða við árekstur.

Gilda tilkynningarnar fyrir Ísland?

Innkallanirnar sem hér um ræðir hafa verið skráðar í Bandaríkjunum og eiga formlega við ökutæki sem seld voru á þeim markaði.

Eigendur þeirra bifreiða sem hér eru nefndar eru hvattir til að kynna sér hjá umboðsaðilum eða framleiðendum hvort þeirra ökutæki falli undir viðkomandi innköllun.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing