Stúdentaráð HÍ sýnir hatur sitt á konum

Margir ráku upp stór augum þegar Stúdentaráð HÍ setti inn tilkynningu á síðuna sína.
Á síðunni segir: ,, Fordómafullt efni gegn trans fólki var í dreifingu innan háskólans. SHÍ fordæmir harðlega alla hatursorðræðu og hvers kyns fordóma.“

Stúdentaráð vísar þar til QR kóða á síðuna ,,Let woman speak.“ Skynsamir stúdentar hengdu upp QR kóða frá samtökunum en með honum geta menn aflað sér fræðslu, styrkt sannleikann.

Auglýsing

Læknadeild HÍ ætti að taka af skrarið og kenna öðrum nemum líffræði, sé deildin ekki gegnumsýrð af trans trúarbrögðunum.

Enginn karlmaður er með píku.

Engin kona er með typpi.

Kynleysi er bull.

Baráttuhópur kvenna

Það er baráttuhópur kvenna og stúlkna sem á kóðann, þær vilja ekki karlmenn, sem segjast konur, inn á salerni og búningsklefa kvenna. Að sjálfsögðu ekki. Hópurinn vill ekki karlmenn, sem skilgreina sig konur, inn í kvennafangelsi og alls ekki í íþróttir kvenna. Að sjálfsögðu ekki. Samtökin verja réttindi stúlkna og kvenna, réttindi sem þær misstu við lögin um kynrænt sjálfræði. Lagadeild HÍ ætti að skoða það nánar og fræða hina.

Stúdentaráð HÍ kallar það hatursorðræðu og fordóma að samtökin berjist fyrir þessum réttindum kvenna. Ekki laust við að maður spyrji, kann þetta fólk að lesa?

Er það hatursorðræða og fordómar að verja réttindi kvenna og stúlkna?

Stúdentaráð HÍ verndar ekki réttindi kvenna og stúlkna. Það hefur ráðið sýnt með afgerandi hætti. Ráðið velur trans hugmyndafræðina framyfir sannleikann og sjálfsögð kvenréttindi sem konur hafa barist fyrir í áratugi. Það má túlka sem hatur í garð kvenna.

Karlar sem nauðga og þykjast vera konur

Stúdentaráð HÍ virðist styðja að karlmaður geti verið kona. Ráðið virðist líta svo á, að geri aðrir það ekki er það hatur og fordómar. Eru þetta háskólastúdentar eða?

Styður Stúdentaráð HÍ, að karlar sem nauðga og drepa fái að skilgreina sig konur og afplána í kvennafangelsi?

Styður Stúdentaráð HÍ að tölfræði kvenna skekkist þegar karlmenn, sem þykjast konur, eru dæmdir og brotið skráist á konur? Sé karlmaðurinn dæmdur sem kona, þá fer tölfræðin gegn konum.
Hrottalegar nauðganir, skráðar á konur! Myndi stúdentaráð samþykkja að tveir norskir hrottar sem nauðguðu 13 ára barni og notuðu til þess ,,konutyppi“ séu konur af því þeir segjast vera það. Stúlkan vegur 39 kíló, er það venja kvenna að nauðga barni á þennan hátt?

Hvað segið þið í stúdentaráði um svona mál sem tengjist trans hugmyndafræðinni, er þetta hatursorðræða? Hér má lesa um nýnasista, karlmann, sem fer í kvennafangelsi. Þetta er birtingarmynd trans hugmyndafræðinnar sem ráðið heillast svo af að það vill banna öðrum stúdentum að segja sannleikann eða í það minnsta vara við sannleikanum. Þetta er bara pínulítið brot af svona málum.

Það hefur kannski farið framhjá stúdentaráði HÍ að sérlegur sendifulltri SÞ kallar eftir að við notum kynin tvö, til verndar kvenkyninu í ofbeldis og kynferðisofbeldismálum. Vissuð þið það stúdentar?

Nútíminn fjallaði um málið.

Látið nauðgara ekki velja sér kyn

Hér er síða baráttusamtaka sem berjast gegn réttindamissi stúlkna, kvenna og lesbía en þær eiga undir högg að sækja. Hér er síðan kvenna um samtök sem þær urðu að stofna til að verja réttindi stúlkna og kvenna í íþróttum, er þetta hatursorðræða Studentaráð HÍ? Home – Independent Council on Women’s Sports

Límmiðinn sem var hengdur upp í háskólanum

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing