Myndband úr Facebook hópnum Fávitar í umferðinni hefur vakið umræður um umferðarreglur og hver eigi í raun réttinn í aðstæðum sem þar sjást.
Í færslunni með myndbandinu segir einfaldlega:
„Svínar fyrir OG fer yfir á rauðu“
Á myndbandinu sést bifreið koma út af bílastæði og inn á veg, þar sem ökumaður annarrar bifreiðar þarf að bregðast við og nauðhemla. Skömmu síðar beygir bifreiðin til hægri á rauðu ljósi.
„Kannski kani?“
Í athugasemdum velta sumir því fyrir sér hvort ökumaðurinn kunni að vera Bandaríkjamaður og vanur því að heimilt sé að beygja til hægri á rauðu ljósi, eins og tíðkast víða í Bandaríkjunum.
Þá skapaðist einnig umræða um hvort hægri réttur ætti við þegar ekið er út af bílastæði.
Einn þátttakandi benti á að svo væri ekki og vísaði til umferðarlaga.
Það samræmist 26. grein umferðarlaga, en þar kemur fram að ökumaður skuli veita umferð forgang þegar ekið er inn á veg af bifreiðastæði, lóð, bensínstöð eða sambærilegu svæði.
Að aka gegn rauðu ljósi telst jafnframt brot á umferðarreglum hér á landi.
En eru lesendur sammála túlkuninni á því sem gerist í myndbandinu?