Spenna og óeirðir blossuðu upp í borginni Lausanne í Sviss eftir að 17 ára piltur lést aðfaranótt sunnudags þegar hann keyrði á vegg á rafskutlu þegar hann reyndi að flýja undan lögreglu.
Lögreglan hafði veitt honum eftirför eftir að tilkynnt hafði verið um að skutlan væri stolin.
Slysið átti sér stað um klukkan 03:45 í hverfinu Prélaz, og tókst ekki að bjarga lífi hans þrátt fyrir endurlífgunartilraunir á vettvangi.
Þrjár nætur af óeirðum – 54 táragassprengjur notaðar
Nóttina eftir slysið safnaðist um hundrað manna hópur saman í Prélaz.
Þeir kveiktu í ruslatunnum, skemmdu strætisvagna og skutu flugeldum að lögreglu.
Óeirðir héldu áfram næstu tvær nætur og á mánudagskvöld tóku allt að 200 manns þátt í mótmælum þar sem enn fleiri strætisvagnar voru brenndir,kveikt í ruslagámum gámi og lögregla grýtt með grjóti og flugeldum.
Lögregla beitti táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa hópnum.
Samtals voru 54 táragassprengjur notaðar og sjö einstaklingar handteknir.
Fjórir lögreglumenn í leyfi – kynþáttahatur sagt grassera innan deildarinnar
Degi eftir slysið voru fjórir lögreglumenn í Lausanne sendir í launalaust í leyfi eftir að einkaspjallhópar þeirra voru gerðir opinberir en sagt er að þar hafi þeir deilt fordómafullum og niðrandi skilaboðum um konur og minnihlutahópar.
Grégoire Junod, borgarstjóri Lausanne, sagði í yfirlýsingu að um „kerfisbundinn vanda“ væri að ræða og að hugarfarsbreyting væri nauðsynleg innan lögreglunnar.
Rannsókn hafin – fjölskylda Marvin mótmælir frásögn lögreglu
Opinber saksóknari í Vaud héraði hefur hafið rannsókn á aðdraganda slyssins.
Samkvæmt fyrstu upplýsingum var lögreglubíll nálægt Marvin þegar hann lenti í veggnum.
Marvin var sakaður um að vera á stolinni skutlu, en móðir hans neitar því og fullyrðir að hann hafi verið saklaus.
Borgarfulltrúi sakar mótmælendur um ofbeldi
Thibault Schaller, borgarfulltrúi fyrir hægriflokkinn SVP, sagði að hópur mótmælenda hefði ráðist að honum í miðri óeirð.
Hann lýsti því á samfélagsmiðlum að honum hefði verið hrint, hann sleginn og hrakinn af vettvangi eftir að hann neitaði að yfirgefa svæðið.
Breytt andrúmsloft í Sviss – árekstrar vegna innflytjendamála
Lausanne hefur undanfarin ár tekið á móti þúsundum flóttamanna, aðallega frá löndum eins og Eriteu, Sýrlandi og Afganistan.
Með vaxandi innflytjendafjölda er sagt að spenna milli ólíkra þjóðfélagshópa hafi aukist og gagnrýni á aðgerðir lögreglu orðið algengari.
Síðan 2016 hafa sjö einstaklingar látist í tengslum við lögregluaðgerðir í Vaud héraði, fimm þeirra af afrískum uppruna.
Dauði Marvin er sá þriðji í Lausanne á aðeins þremur mánuðum.
SVP vill setja hámark á íbúafjölda – þjóðaratkvæðagreiðsla í kortunum
Uppþotin koma ári eftir að SVP, stærsti stjórnmálaflokkur Sviss, kynnti tillögu um að setja 10 milljóna hámark á íbúafjölda landsins fyrir árið 2050.
Tillagan, sem hefur fengið yfir 115 þúsund undirskriftum, gæti farið í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2026.
Ef tillagan nær fram að ganga, verður óheimilt að veita dvalar- eða ríkisborgararétt þegar íbúatala fer yfir 9,5 milljónir.
Í dag eru yfir 25 prósent íbúa Sviss erlendir ríkisborgarar.