Sýrlenskur karlmaður búsettur á Íslandi, Ayham Khanum, skrifaði opna færslu á Facebook þar sem hann lýsir Útlendingastofnun sem stað þar sem sálrænar og líkamlegar pyntingar fari fram.
Einnig hafði hann í beinum hótunum gagnvart stofnuninni.
„Hér er hryðjuverkaskrifstofan í útlendingaeftirlitinu,“ skrifar maðurinn og heldur því fram að þar fari fram „sálrænar og líkamlegar pyntingar“ auk þess sem hann talar um „harða kúgun“ gegn fólki sem bíður eftir ríkisborgararétti.
„Ég ætla að gera eitthvað sem þú hefur aldrei heyrt um áður. Þetta er bein ógn við innflytjendamál. Ég veit ekki hvað gerist næstu daga. Kannski morð, kannski eitthvað annað, eða kannski verra.“
Hann segir stöðuna óréttláta og bendir á að margir innflytjendur séu fastir á eyju án ferðafrelsis.
„Ég sór sjálfum mér því eið að ég myndi aflétta óréttlætinu af fólki. Mér er alveg sama þó ég lendi í fangelsi, en útlendingastofnunin verður að vera aguð svo hún verði fyrirmynd,“ segir í færslunni.
Síðar í textanum skrifar Khanum:
„Ég ætla að gera eitthvað sem þú hefur aldrei heyrt um áður. Þetta er bein ógn við innflytjendamál. Ég veit ekki hvað gerist næstu daga. Kannski morð, kannski eitthvað annað, eða kannski verra.“
Þá segir Khanum að skrifstofa Útlendingastofnunnar hafi meinað honum að heimsækja bræður sína, og fullyrðir að það muni þau „þurfa að gjalda fyrir”.
Blaðamaður leitaði upplýsinga hjá lögreglu og var tjáð að færslan hafi verið tilkynnt og að málið væri komið í farveg innan embættisins.

