Telegram sendir óhugnanleg skilaboð til allra notenda sinna á Spáni

Skilaboðaforritið Telegram sendi í gær óvenjuleg skilaboð til allra notenda sinna á Spáni þar sem varað er við fyrirhuguðum reglum stjórnvalda sem, að mati fyrirtækisins, ógna tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs á netinu.

Í skilaboðunum er fullyrt að stjórnvöld séu að innleiða aðgerðir sem geti breytt Spáni til hins verra undir yfirskini verndar og öryggis. Telegram segir hættuna raunverulega og að hún muni raungerast á næstunni.

Aldursstaðfesting talin ógna nafnleynd

Auglýsing

Ein af megintillögunum sem Telegram gagnrýnir er bann við notkun samfélagsmiðla fyrir börn undir 16 ára aldri, ásamt því að aldursstaðfesting verði gerð að skyldu. Samkvæmt skilaboðunum gæti slík krafa leitt til þess að notendur þurfi að framvísa skilríkjum eða auðkenna sig ef þeir vilja skoða umdeilt efni.

Telegram segir að slíkt skapi stórhættulegt fordæmi þar sem nafnleynd á netinu hverf og þannig séð opnað fyrir nær ótakmarkaða söfnun persónuupplýsinga.

Einnig er varað við tillögum um persónulega ábyrgð stjórnenda samfélagsmiðla ef „óæskilegt, skaðlegt eða hatursfullt efni“ er ekki fjarlægt tafarlaust. Telegram segir að slíkar reglur muni leiða til kúgandi ritskoðunar þar sem vettvangar þori ekki að leyfa umdeilda umræðu af ótta við refsingu stjórnvalda.

Í skilaboðunum er bent á að slíkt geti haft slæm áhrif á pólitíska umræðu, blaðamennsku og almenn skoðanaskipti í samfélaginu.

Refsing fyrir dreifingu óæskilegs efnis

Telegram gagnrýnir einnig hugmyndir um að gera dreifingu svokallaðs „skaðlegs efnis“ refsiverða. Fyrirtækið segir að með því fái stjórnvöld óeðlilegt vald yfir því hvaða efni fái sýnileika og hvaða skoðanir verði fjarlægðar eða takmarkaðar.

Að mati Telegram gæti slíkt leitt til þess að stjórnvöld móti og stjórni upplýsingaflæði og búi til bergmálshella þar sem aðeins samþykkt sjónarmið fái að sjást.

Óljós skilgreining

Að lokum er varað við kröfum um að vettvangar fylgist sérstaklega með því hvernig efni stuðli að hatri eða skautun. Telegram segir hugtökin illa skilgreind og óttast að gagnrýni á stjórnvöld eða opinbera stefnu verði stimpluð sem sundrung eða hatursorðræða.

Telegram segir að slíkar aðferðir geti orðið tæki til að þagga niður í stjórnarandstöðu og óþægilegum röddum.

Segir baráttuna snúast um grundvallarréttindi

Telegram leggur áherslu á að fyrirtækið muni áfram standa vörð um dulkóðun, friðhelgi og tjáningarfrelsi og hafna bakdyrsaðgangi eða óhóflegum kröfum stjórnvalda.

Í lok skilaboðanna eru spænskir notendur hvattir til að verja rétt sinn og málfrelsi áður en það verði of seint.

Skjáskot af skilaboðunum sem allir notendur Telegram á Spáni fengu

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing