Telur rök ríkisins fáránleg – „Hann býr í Sviss sem liggur ekki að sjó“

Aðalmeðferð í máli Vélfags og kaupsýslumannsins Ivan Nicolai Kaufmann gegn íslenska ríkinu lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Málið var tekið til flýtimeðferðar, og er búist við að dómur verði kveðinn upp á næstu vikum.

Ágreiningur um tengsl við Rússland

Auglýsing

Ríkislögmaður hélt því fram að tengsl væru enn til staðar milli Vélfags og rússneska útgerðarfyrirtækisins Norebo, sem er á viðskiptaþvingunarlista Evrópusambandsins.

Í rökum ríkisins kom fram að Kaufmann hefði ekki enn greitt lán sem hann fékk frá Orlov feðgum til kaupa á félaginu Titania Trading, sem á Vélfag.

Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Vélfags, segir eðlilegar skýringar á þessu.

Arion banki tók ákvörðun um frystingu fjármuna Vélfags þann 8. júlí 2025 sem var talsvert löngu áður en gjalddagi kaupverðsins rann upp þann 14. ágúst 2025.

Frystingin leiddi það af sér að kaupandi taldi sér ekki óhætt að greiða kaupverðið, vegna þess möguleika að bankinn eða ráðuneytið myndu draga réttmæti slíkrar greiðslu í efa og, eftir atvikum, beita kaupanda aðgerðum vegna þessa.

Sigurður sagði málið fyrst og fremst snúast um hvort réttilega hafi verið staðið að þeim stjórnvaldsákvörðunum sem teknar voru gegn Kaufmann og Vélfagi.

Hann benti á að Vélfag sé eina íslenska fyrirtækið sem viðskiptaþvinganir ESB gegn Rússum nái yfir, þrátt fyrir að það sé nú alfarið í eigu svissnesks fjárfestis.

„Hann býr ekki við sjó“

Á meðal röksemdafærslna ríkisins var að Ivan Kaufmann, sem er búsettur í Sviss, hafi ekki reynslu af sjávarútvegi né tengsl við atvinnugreinina.

„Hann býr í Sviss sem liggur ekki að sjó,“ sagði Jóhanna Katrín Magnúsdóttir, lögmaður ríkisins, fyrir dómi og bætti við að viðskiptin með hluti í Vélfagi hafi ekki litið út fyrir að vera hefðbundin viðskipti milli ótengdra aðila.

Áhugavert verður að sjá hvort allir fjárfestar, sem starfa á EES svæðinu eða innan EFTA muni þurfa að búa við sjó til að geta fjárfest í íslenskum sjávarútvegi.

Vélfag telur brotið á sér

Samkvæmt lögmönnum Vélfags og Kaufmanns var fyrirtækið sett í erfiða stöðu þegar Arion banki frysti eignir þess vegna meintra tengsla við Rússland.

Þeir telja að sú ákvörðun hafi verið tekin í samráði við utanríkisráðuneytið.

Kaufmann hefur staðist allar áreiðanleikakannanir bæði í Sviss og Þýskalandi og neitar því alfarið að viðskipti hans með Vélfag séu eitthvað annað en lögmæt viðskipti innan EES svæðisins.

Dómur í málinu verður kveðinn upp á næstu vikum.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing