Telur ummæli áhrifamikilla femínista um hjónaband fjarlæg raunveruleika fólks

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, gagnrýnir Kvenréttindafélag Íslands í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum fyrr í dag. Tilefni gagnrýninnar er ummæli sem féllu í auglýsingu fyrir hlaðvarpsþátt þar sem hjónaband var sagt „afsprengi feðraveldisins og forsenda fyrir því að konur gefi vinnu sína að miklu leyti.“

Hlaðvarpið heitir Hornkerlingar og er í boði Kvenréttindafélags Íslands en honum stjórna þær María Hjálmtýsdóttir og Auður Önnu Magnúsdóttir en í auglýsingunni er því meðal annars haldið fram að hjónaband sé afsprengi feðraveldisins illræmda, og þjóni hagsmunum þess enn þann dag í dag.

Auglýsing

Snorri segir ummælin endurspegla samfélagssýn sem hann telur bæði neikvæða og fjarlæga raunveruleika fólks í landinu. Hann veltir einnig upp spurningunni hvort félagið líti á konur sem „raunverulegt fyrirbæri“ eða hugmyndafræðilegt hugtak.

Segir félagið hafa áhrif á stjórnvöld

Í færslu sinni heldur Snorri því fram að Kvenréttindafélag Íslands hafi veruleg áhrif á ríkisstjórnina og sé reglulega fengið til umsagnar um þingmál. Hann nefnir sérstaklega jafnlaunavottun sem dæmi og segir félagið hafa lagst gegn því að kerfið yrði aflagt. Að hans mati hafi úttektir sýnt að kerfið hafi ekki skilað tilætluðum árangri og kosti samfélagið verulegar fjárhæðir.

Þá gagnrýnir hann afstöðu félagsins í málefnum tengdum fæðingarorlofi. Hann segir félagið leggjast gegn því að forleldrar geti ráðstafað fæðingarorlofstíma sínum að vild. Að hans mati leiði núverandi fyrirkomulag til tekjumissis og minni samveru foreldra með ungabörnum.

Gagnrýnir hugmyndafræðina

Snorri segir að samkvæmt þeim sjónarmiðum sem hann gagnrýnir sé ekki litið á það sem kvenfrelsi að kona skipuleggi heimilishald og fjölskyldulíf á eigin forsendum. Hann telur að of mikil áhersla sé lögð á ævitekjur sem einhvern mælikvarða á jafnrétti, án þess að tekið sé tillit til annarra þátta, svo sem barneigna og umönnunarstarfa innan heimilis.

Hann tengir umræðuna við lækkandi fæðingartíðni og spyr hvort neikvæð umræða um hjónaband og fjölskyldulíf geti haft áhrif á þróunina.

Gagnrýnir einnig afstöðu í útlendingamálum

Í færslunni vísar Snorri einnig til umsagnar Kvenréttindafélags Íslands um frumvarp varðandi brottfararstöð fyrir útlendinga sem ekki hafa dvalarrétt hér á landi. Hann segir félagið hafa lagst gegn málinu og gagnrýnir að það tjái sig um mál sem hann telur ekki tengjast starfsemi þess beint.

Að lokum beinir hann sjónum að fjárveitingum til félagasamtaka og segir að mörg þeirra, þar á meðal Kvenréttindafélagið, þiggi verulegar fjárhæðir úr opinberum sjóðum. Hann telur rétt að endurskoða slíkar ráðstafanir og forgangsraða fjármunum í önnur verkefni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing