„Það er enginn að bíða eftir því að heyra hvað Maríu Lilju finnst“

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Fullorðins (S02E13), sem ber yfirskriftina Góða fólkið hefur engan áhuga á mannréttindum, ræddi Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, meðal annars um kulnun, farsímanotkun í grunnskólum og samfélagslega umræðu um mannréttindi.

Þar fór hann hörðum orðum um það sem hann kallar „góða fólkið“ og þann réttrúnað sem hann telur hafa einkennt samfélagið á síðustu árum.

„Enginn er að bíða eftir því hvað Maríu Lilju finnst“

Auglýsing

Frá upphafi þáttarins gagnrýnir Þórarinn að sama fólkið komi sífellt fram í umræðunni án þess að hafa raunverulegt erindi:
„Það er enginn að hlusta á Maríu Lilju Þrastardóttur að ræða þessi mál. Það er enginn sem er að bíða eftir… ‘hvað ætli Maríu Lilju finnist um þetta ofbeldismál í Breiðholti?’ Ég held að þetta sé öllum alveg sama.“

Hann segir umræðuna hafa verið dregna í dilka og að það þurfi að ræða málin af hreinskilni, annars endi Ísland á svipuðum stað og önnur Evrópulönd:
„Ef þessi mál eru ekki rædd, þá munum við bara fara sömu leið og Evrópa, þar sem allt er komið í algjört rugl.“

Aðlögun innflytjenda og ábyrgð samfélagsins

Þórarinn leggur áherslu á að aðlögun að íslensku samfélagi sé skilyrði fyrir búsetu:
„Ef þú ert að koma til Íslands, þá ert þú að koma til Íslands. Og ef þú getur ekki aðlagast því samfélagi sem þú ert að koma inn í, þá hefur þú ekkert erindi.“

Í framhaldinu var rætt um svokallað „Breiðholtsmál“, þar sem drengir virtu ekki kvenkyns kennara. Kidda, þáttastjórnandi, sagði:
„Það hefur verið skrifað einhvers staðar að vandamálið sé að hluta til vegna þess að það eru strákar sem eru með kvenkyns kennara sem þeir taka ekki mark á… og svo taka þeir ekki mark á mömmu sinni heldur. Það er bara þannig í sumum löndum – konur eru ekki metnar eins og karlar.“

„Þetta snýst um athyglisþörf, ekki réttindi“

Mikil gagnrýni kom fram frá Þórarni á þá sem hann telur misnota umræðuna um mannréttindi:
„Þetta snýst ekkert um réttindi neins hóps. Þetta hefur alltaf verið ótrúlega mikið undanfarið – að fólk sé að berjast fyrir kvenréttindum, svo fyrir réttindum þeldökkra, svo trans fólks, svo Palestínu – alltaf eitthvað. Þetta er bara leið fólks til að koma sér á framfæri á kostnað annarra.“

Hann sagði svo kallaða réttlætisbaráttu í dag snúast meira um ímynd og að fá hylli á samfélagsmiðlum:
„Þetta fólk hefur engan áhuga á fordómum, engan áhuga á mannréttindum, engan áhuga á að takast á við ofbeldi… Þetta snýst um að fá athygli á samfélagsmiðlum.“

„Allir sjá í gegnum þetta“

Þórarinn hélt áfram gagnrýni sinni á pólitíska umræðu og viðbrögð stjórnvalda:
„Allir flokkar á þingi eru sammála þessari línu, með einhverjum blæbrigðamun. Þeir myndu ekki segja það opinberlega, en þeir sjá þetta alveg. Fólk er orðið þreytt á þessu.“

„Keisarinn er án klæða“

Í lok þáttarins sagði Þórarinn að sá hópur sem áður hafi haft mest áhrif í umræðunni hafi misst traust almennings:
„Það er enginn að bíða eftir inngripi frá þessum sem hafa haft hæst í allri umræðunni undanfarin ár. Keisarinn er án klæða, fólk er farið að sjá í gegnum þetta.“

Hægt er að horfa á brot úr þættinum hér fyrir neðan en ef þú vilt horfa á allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hér.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing