Það er raunveruleg eftirspurn eftir því að menn segi bara hlutina eins og þeir eru

Brynjar Níelsson segir að Snorri Másson fái nú sömu viðbrögð og hann sjálfur hafi áður fengið, einfaldlega vegna þess að hann segi hlutina beint út.

Byrnjar sagði þetta í hlaðvarpsþættinum Ein pæling, þar sem Brynjar og Þórarinn Hjartarson ræða pólitít, viðbrögð við skoðunum og vaxandi óþol í samfélaginu.

„Hann segir þetta bara eins og þetta er“

Auglýsing

Í samtalinu segir Brynjar að Snorri Másson fari í taugarnar á fólki vegna þess að hann setji stefnumál sín skýrt fram.

Að hans mati séu viðbrögðin ekki ný af nálinni, heldur kunnugleg þeim sem hafi áður tekið óvinsælar eða umdeildar afstöður í opinberri umræðu.

Þórarinn bendir á að aldur Snorra skipti einnig máli og að sumir telji hann einfaldlega ekki eiga að vera á þessum skoðunum vegna þess hversu ungur hann er.

Reiði og andúð kraumi undir yfirborðinu

Brynjar lýsir því svo hvernig hann upplifi reiði og finni andúð krauma þegar hann hlusti á umræðu í samfélaginu.

Hann segir að Snorri sé gjarnan settur í ákveðinn flokk og sakaður um öfgar, án þess að raunveruleg umræða eigi sér stað um þau málefni sem hann setur fram.

Í því samhengi hafnar Brynjar ásökunum um yfirburðahyggju og kallar slíkt algjört þvælu, þar sem fólk spyrji sig aldrei hvaðan reiðin komi í raun.

Skýringin á fylgisaukningu

Að mati Brynjars sé raunveruleg eftirspurn í samfélaginu eftir því að stjórnmálamenn segi hlutina einfaldlega eins og þeir eru og nálgist vandamál af raunsæi.

Hann segir að dyggðaskreytingar skili litlu og að fólk vilji frekar heiðarlega greiningu á stöðunni.

Hann telur að þessi nálgun útskýri að hluta hvers vegna fylgi Miðflokksins sé á uppleið, þar sem kjósendur finni þar skýrari skilaboð og beinskeyttari umræðu en víða annars staðar.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing