,,Þessum mönnum var kippt af götunni út af mér“ – Brutu á ungri konu í leigubíl

Friðrik Einarsson leigubílstjóri segir það oft á tíðum hafa verið ömurlegt hlutskipti að birta opinberlega myndbönd af því sem er að gerast á leigubílamarkaðnum á Íslandi. Friðrik sem er betur þekktur sem Taxý Hönter á samfélagsmiðlum er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar.

Hann segir allt hafa farið úr böndunum á leigubílastæðinu á Keflavíkurflugvelli á undanförnum árum:

Auglýsing

,,Þarna er bara komin upp sú stemmning að hnefinn ræður og leigubílastæðið fyrir framan alþjóðaflugvöllinn í ferðamannaparadísinni Íslandi er komið í hendurnar á mönnum frá Vesturströnd Afríku og Mið-Austurlöndum. Það væri ekkert að því í sjálfu sér, en þarna er um að ræða viðskiptasiðferði og menningu sem er allt önnur en sú sem við þekkjum og samræmist ekki þeim gildum sem við erum vön,“ segir Friðrik, sem hefur vakið mikla athygli fyrir myndbönd sem hann hefur birt á samfélagsmiðlum undir nafninu Taxý Hönter:

,,Ég fór að mæta þarna fyrir miðnætti þegar það er mikið að gera og taka út hvað væri raunverulega í gangi. Þegar ég var búinn að sjá það í svolítinn tíma hve slæm staðan var fór ég að birta myndbönd á X-inu og þau fóru fljótt að vekja athygli. Ég þurfti að fara í gegnum mikla glímu í hausnum á mér áður en ég ákvað að byrja að birta þessi myndbönd, af því að ég vissi að það gæti blossað upp rasismi og fordómar gagnvart erlendu fólki. En á endanum komst ég að því að það yrði að sýna hvað væri raunverulega í gangi. Ég hélt að fjölmiðlar myndu strax pikka þetta upp, en það gerðist ekki. Það ríkti bara algjör þögn um þetta þangað til mjög nýlega. Það liðu 2 ár þar sem enginn sýndi þessu áhuga,“ segir Friðrik, sem segir það hafa tekið á að velja þennan slag:

,,Það hefur verið ömurlegt að vera í þessu hlutverki. Það er búið að hóta mér ofbeldi ítrekað og þrisvar sinnum hefur mér verið hótað lífláti fyrir framan ríkisstarfsmenn. Ég er ekki hræddur við það af því að ég held að þetta séu fyrst og fremst frekjuhundar. Annað sem hefur verið erfitt er að eftir að fjölmiðlar fóru að fjalla um þetta hef ég fengið á mig alls konar stimpla um rasisma og fordóma. Ég er búinn að enda í fyrirsögnum sem eineltishrotti og fleira í þeim dúr. Mér finnst auðvitað ömurlegt að það að ég sé að benda á raunveruleg vandamál ýti undir einhvers konar fordóma og það er ömurlegt að heiðarlegir og góðir leigubílstjórar frá útlöndum séu að blæða fyrir svarta sauði sem skemma fyrir þeim. Ég er búinn að vera lengi í því að fjarlægja af samfélagsmiðlunum mínum allt sem er einhver rasismi og hef lokað fyrir kommentakerfin af því að ég vil ekki ýta undir slíkt. En á endanum er ekki hægt að þegja bara yfir hlutum sem eru raunverulega að gerast.“

Friðrik segir allt hafa breyst á undanförnum árum þegar kemur að leigubílamarkaðnum á Íslandi, sérstaklega af því að hingað hafi komið menn með allt aðrar hugmyndir um viðskiptasiðferði og hegðun gagnvart kollegum og viðskiptavinum:

,,Ef við tökum bara leigubílastæðið í Keflavík sem ég hef þekkt í mörg ár, þá hefur gjörsamlega allt farið úr böndunum þar á undanförnum árum. Hluti af erlendu bílstjórunum hafa gjörsamega valtað yfir okkur sem höfum verið þarna í gegnum tíðina og það er enga hjálp að fá frá Isavia sem á að vera með eftirlit þarna. Þetta byrjaði eiginlega þegar reglunum var breytt þannig að nánast hver sem er gat farið að keyra leigubíl. Það eru námskeið í Mjódd sem þurfti alltaf að taka og manni fannst þetta vera hálfgert peningaplokk, en núna sér maður mikilvægi þess að það geti ekki bara hver sem er farið í þetta. Þarna voru stimplaðir inn í okkur ákveðnir hlutir varðandi viðskiptasiðferði, framkoma við kúnna og samskipti okkar á milli og fleira þar fram eftir götunum. Það er svo margt sem getur gerst í leigubílum þar sem bílstjórnarnir þurfa að kunna að eiga við aðstæðurnar. En samkvæmt nýju lögunum fengu þeir að halda þessi námskeið áfram í 2 ár á íslensku þó að 95% af þeim sem sætu námskeiðin skyldu ekkert í tungumálinu. Þeir eru líkamlega til staðar, en skilja ekkert hvað þarna fer fram. Ökuskólinn í Mjódd ætti að geta kvittað undir þessar tölur,“ segir Friðrik, sem segist sjálfur ekki þola rasisma, en á sama tíma sé ekki hægt að þegja bara yfir hlutum sem raunverulega eigi sér stað:

,,Ég er gamall réttlætisriddari og hef alltaf stutt við það að fólk frá öðrum menningarheimum fái að koma hingað og búa á Íslandi og byrja hér nýtt líf. En við verðum að sjá til þess að hlutirnir séu gerðir á réttan hátt. Þegar hingað koma menn frá allt öðrum menningarheimum með allt annað viðskiptasiðferði getum við ekki verið barnaleg og látið bara hvað sem er viðgangast. Þeir eru komnir með leigubílamenninguna frá heimalandinu til Íslands án þess að aðlagast neinu. Í Keflavík er þetta oft fyrsta snerting ferðamanna við landið og þá gengur ekki að það byrji á svindli og hegðun sem fellur ekki að gildunum okkar hér. Ef þú ferð upp í leigubíl sem túristi í Nígeríu eða Sómalíu er mjög líklega reynt að svindla á þér. Við viljum ekki taka þá menningu upp hér, ekki síst þar sem ferðamannaiðnaðurinn er stærsti atvinnuvegur landsins. Fólk er oft óöruggt þegar það lendir á Íslandi og það hvernig Isavia hefur haldið á upplýsingagjöf á flugvellinum og eftirliti er algjörlega galið. Það er ekkert fólk þarna.“

Friðrik segir allt hafa sprungið í loft upp eftir frétt RÚV um kaffiskúr sem hafði verið breytt í bænahús, þó að húsið sé í eigu íslenska ríkisins:

,,Bænahúsið er gott dæmi um það sem hefur farið úrskeiðis á flugvellinum í Keflavík. Isavia vissi ekkert hvað var í gangi þegar það kemur loksins frétt um að það sé búið að breyta kaffiskúr í eigu ríkisins í bænahús og leigubílstjórum sé bannað að fara inn í skúrinn sem þeir hafa haft aðgang að í öll þessi ár. Það sprakk allt í loft upp þegar þessi frétt fór í loftið um bænahúsið, en í raun er það ekki stórmál miðað við allt hitt sem er búið að vera í gangi,“ segir Friðrik, sem nefnir þar meðal annars brot á kvenfólki í leigubílum:

,,Þetta er auðvitað mjög viðkvæm umræða, en við vitum fyrir víst að það er búið að dæma þrjá fyrir að brjóta á kvenfólki í bílunum. Einn braut á 17 ára gamalli stúlku á Reykjanesbrautinni, fyrst var hann dæmdur í 2 ár fyrir það. En hann keyrði um í 16 mánuði með kæruna á bakinu og enginn gerði neitt. Svo var annað mál þar sem bílstjóri var handtekinn á Keflavíkurflugvelli fyrir nauðgunarmál og þar kemur í ljós að það var annar maður sem tók þátt í glæpnum. Þeir rukkuðu svo konuna fyrir farið eftir að hafa brotið á henni. Það var ég sem blés þessi mál upp og þegar fólk spyr mig af hverju ég er að gera það sem ég er að gera er það meðal annars til þess að koma í veg fyrir svona hluti. Þessum mönnum var kippt af götunni strax eftir að ég vakti athygli á þessu. Það er ansi margt búið að gerast út af því að ég hef verið heltekinn af þessum málum.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Taxý Hönter og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing