Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðikennari við Menntaskólann í Kópavogi, hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega um atvik sem varð tilefni umtals á samfélagsmiðlum og meðal fjölmiðla í síðustu viku.
Tilefnið var færsla Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, þar sem hann sýndi mynd úr kennslustund hjá Þorsteini þar sem hann var með mynd af Snorra uppi á töflu.
Að sögn Þorsteins var hann að sýna nemendum brot úr Kastljósviðtali þar sem Snorri Másson,, var einn viðmælenda.
Passaði við námsefnið
Í viðtalinu ræddu Snorri og Þorbjörg Sveinsdóttir, fulltrúi Samtakanna ‘78, um málefni tengd kynvitund og trans fólki sem var efni sem Þorsteinn segir að hafi verið í beinni tengingu við það sem fjallað var um í námsefninu í viðkomandi viku.
„Ég var að fara yfir hugtök eins og kyn, kynvitund, kyngervi og kynhneigð,“ segir Þorsteinn í nýjasta þætti hlaðvarpsins Tveir kallar. Hann bætir við að hann hafi verið að leita að raunverulegri kveikju fyrir umræðutíma í námsmati þegar hann sá umrædda Kastljósþáttinn.
„Viðtalið birtist að kvöldi þess dags og passaði fullkomlega við það sem ég var að fjalla um,“ segir hann og útskýrir að markmiðið hafi verið að örva umræðu meðal nemenda með dæmi úr samtímanum.
Málið vakti athygli eftir að Snorri gagnrýndi kennsluna opinberlega og sagði óeðlilegt að nemendur væru skyldaðir til að horfa á hann í kennslustund.
Hann sakaði Þorstein um pólitíska slagsíðu og setti fram spurningu um hvort kennarar í opinberri þjónustu ættu að nýta tímann í slíkar umræður.
Aðrir stigu fram
Málið hefur einnig vakið viðbrögð annarra, en Brynjar Karl, körfuknattleiksþjálfari, steig fram í kjölfarið og sagði að Þorsteinn væri sjálfur sekur um allt sem hann sakaði aðra um.
Segir reynslu dóttur sinnar staðfesta gagnrýni Snorra Mássonar á Þorstein V.
Þorsteinn hefur ekki áður tjáð sig um málið en hann leggur áherslu á að tilgangurinn hafi verið að fræða, ekki pólitískur.
@tveir.kallar22: Fjölgun örvhentra. Finnið Tvo kalla á helstu miðlum. Í þessari klippu er ég að fara yfir það þegar þingmaður ályktar um vafasama kennsluhætti byggt á mynd úr tíma.♬ original sound – Tveir kallar