Miklar umræður hafa skapast á íslenska hluta Reddit , r/Iceland, eftir að greint var frá því að Angjelin Sterkaj, sem dæmdur var í sextán ára fangelsi fyrir morðið á Armando Beqirai í Rauðagerði, hafi fengið reynslulausn og verið sendur úr landi eftir að hafa afplánað um þriðjung dómsins.
Sterkaj var sendur til Albaníu og sætir endurkomubanni til Íslands og Schengen svæðisins. Brottvísunin byggir á nýlegri bráðabirgðaheimild sem gerir kleift að veita erlendum föngum reynslulausn eftir að þriðjungur refsitímans er liðinn, liggi fyrir ákvörðun um brottvísun.
Málið hefur vakið hörð viðbrögð meðal notenda á íslenska hluta Reddit, r/Iceland, þar sem margir telja að ákvörðunin sendi röng skilaboð um afleiðingar alvarlegra afbrota hér á landi.
„Vænlegri kostur fyrir glæpamenn á Íslandi“
Einn notandi segist ekki geta séð annað en að niðurstaðan geri það að vænlegri kosti fyrir íslenska glæpamenn að kaupa þjónustu erlendra leigumorðingja.
„Get ekki séð annað en að þetta geri kaup á þjónustu erlendra leigumorðingja að vænlegri kosti fyrir glæpamenn á Íslandi,“ skrifar hann.
Annar tekur undir og segir málið mjög hættulegt.
Svipað sjónarmið kemur fram hjá öðrum notanda sem segir niðurstöðuna varla hafa mikinn fælingarmátt gagnvart undirheimunum.
„Ekki er þetta fælingarmáttur frá undirheimunum. Svo mikið er víst.“
Enn annar gengur lengra og telur að með þessu sé verið að skapa hvata fyrir erlenda glæpamenn til að fremja brot hér á landi.
„Þú ert ekki að losna við glæpamenn með þessu heldur frekar að laða þá að Íslandi,“ skrifar hann og bendir á að erlendur fangi geti þannig fengið verulegan afslátt af afplánun gegn því að vera vísað úr landi.
„Þrjú ár fyrir aftöku, reynslulausn og flugmiði?“
Aðrir beina sjónum sínum að því hversu alvarlegt brotið var og hversu stór hluti dómsins féll í raun niður.
Einn spyr hvort þetta sé raunverulega niðurstaðan þegar maður hefur verið dæmdur fyrir morð:
„Er þetta bara málið? 3 ár fyrir aftöku, reynslulausn og flugmiði til heimalands?“
Sterkaj hafði þó alls verið sviptur frelsi í rúm fimm og hálft ár vegna málsins þegar gæsluvarðhald og afplánun eru lögð saman. Hæstiréttur dæmdi hann árið 2023 í sextán ára fangelsi fyrir að skjóta Armando Beqirai níu sinnum fyrir utan heimili hans í Rauðagerði árið 2021. Morðinu hefur ítrekað verið lýst sem aftöku.
Telur fangelsi í Albaníu mögulega betri niðurstöðu
Ekki eru þó allir á því að brottvísunin sé endilega verri niðurstaða.
Einn notandi bendir á að Sterkaj hafi áður verið eftirlýstur í Albaníu vegna dóms þar í landi og kunni því enn að þurfa að sæta fangelsisvist þar.
„Hans bíður víst fangelsisdómur þar á bæ þannig kannski fínt að hann sitji bara þar frekar en á Kvíabryggju þar sem hann var,“ skrifar hann.
Sá sami telur að varanlegt endurkomubann inn á Schengen svæðið gæti jafnvel haft meiri fælingarmátt en áframhaldandi afplánun í opnu fangelsi hér á landi.
Ekki liggur hins vegar fyrir hvort eldri refsidómur Sterkaj í Albaníu sé enn í gildi.
Spurt um jafnræði íslenskra og erlendra fanga
Jafnræðissjónarmið koma einnig við sögu í umræðunni. Einn notandi spyr hvað þeir sem annars vilji harðari refsingar og brottvísun erlendra afbrotamanna telji um málið.
Annar bendir á að ríki sendi gjarnan eigin ríkisborgara heim eftir afbrot erlendis og spyr hvers vegna Íslendingar ættu að gera ráð fyrir öðru hjá öðrum ríkjum.
Þá segir einn þátttakandi umræðunnar að íslenska fangelsiskerfið virðist eiga í vandræðum með að finna jafnvægi milli refsingar og betrunar. Hann telur morð svo alvarlegan glæp að þar eigi refsingin sjálf að vega mun þyngra.
Sigríður segist ekki hafa séð þetta fyrir
Gagnrýnin á Reddit passar að nokkru leyti við ummæli Sigríðar Á. Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra.
Hún sagði í samtali við Vísi í dag að sig hefði ekki órað fyrir því að bráðabirgðaákvæðinu yrði beitt á fanga sem afplánuðu dóma fyrir jafn alvarleg brot.
Að hennar sögn hafi umræðan við afgreiðslu málsins á Alþingi fremur snúist um að létta á fangelsiskerfinu með því að senda erlenda fanga sem sætu inni fyrir vægari brot úr landi.
Hún telur niðurstöðuna jafnframt geta sent röng skilaboð til erlendra glæpahópa og bendir á að íslenskir fangar eigi ekki kost á sambærilegri styttingu refsinga með brottvísun.