Drenglyndi vekur athygli á sænskum þáttum
Hópurinn Drenglyndi opnaði heimasíðu á dögunum, Drenglyndi. Á heimsíðunni má finna ýmsan sannleik, og fróðleik. Svo verður áfram, markmiðið er að segja inn nýja færslu á hverjum degi.
Að undanförnu, undir fréttir og færslur, eru krækjur að sænskum fræðsluþáttum um hinsegin málefni. Hér er um heimildarþætti að ræða. Ríkissjónvarpið hefur ekki sýnt þættina fyrir margar beiðnir þar um.
Þrír þættir af fjórum eru aðgengilegir en sá síðast er það ekki, enda átakanlegastur. Þar er um að ræða ungan dreng, 11 ára gamlan, sem langar að vera stelpa. Foreldrar hoppa á trans lestina með barnið og þá upphefst hin versta martröð.
Drengurinn er settur á hormónameðferð sem veldur honum ónotum í öllum líkamana og hann getur engann veginn verið. Sýnt var fram á aukaverkanir lyfjanna, s.s. beinþynningu og ófrjósemi. Svo brá mönnum í brún, að sænsk yfirvöld ákváðu í kjölfarið að breyta viðmiðum sínum um hormónagjafir fyrir börn. Verndum börnin á að vera kjörorð heilbrigðisþjónustunnar.
Við bjóðum alla velkomna á síðuna okkar, lesið ykkur til fróðleiks, á síðunni er sannleikurinn sagður.
Hvað þýðir nafnið
Margir hafa spurt af hverju Drenglyndi. Því er auðsvarað. Orðið drenglyndi þýðir að hafa göfugt og drengilegt lunderni. Dæmi: kennarinn vildi innræta nemendum sínum drenglyndi.
Orðanet tengir drenglyndi við orð eins og; sannlyndi, eðallyndi, hreinlyndi, mannkostir, göfuglyndi og heilindi svo fátt eitt sé nefnt.
F.h. Drenglyndis
Helga Dögg Sverrisdóttir