Viðtal Íslendingsins Samúels Guðmundssonar og rabbínans Shmuley Boteach hjá Piers Morgan hefur þegar fengið töluverða umfjöllun hér á landi. Það sem hefur hins vegar ekki farið jafn hátt er hversu gríðarlega jákvæð viðbrögð Samúel hefur fengið fyrir framgöngu sína í þættinum, bæði frá Íslendingum og erlendum áhorfendum.
Nútíminn fór yfir á annað þúsund athugasemda við þáttinn á YouTube auk umræðna undir fréttum DV og Vísis og síðum erlendra fjölmiðla. Niðurstaðan er nokkuð afgerandi.
Langflestir þeirra sem taka afstöðu hrósa Samúel. Í lauslegri yfirferð Nútímans á um þúsund kommentum voru vel yfir níu af hverjum tíu slíkum ummælum á YouTube jákvæð í hans garð, þótt vissulega megi einnig finna fólk sem telur framkomu hans gagnvart Boteach hafa verið óþarfa ögrun.
Það sem vekur sérstaka athygli er að lofið snýst ekki aðallega að afstöðu Samúels til Ísraels. Aftur og aftur nefna áhorfendur hvernig hann hélt ró sinni, talaði skýrt og lét ekki slá sig út af laginu þrátt fyrir að Boteach öskraði, greip stöðugt fram í og sakaði hann meðal annars um gyðingahatur og hatursglæp.
„Hann var landi sínu til sóma“
Viðbrögðin undir myndbandinu á YouTube eru nánast einhliða.
Vinsælasta athugasemdin sem beinist að Íslandi, „Let’s go Iceland!!!“, hafði fengið um 1.800 læk þegar Nútíminn fór yfir umræðuna.
„Samúel jók bara ferðamannastrauminn til Íslands,“ skrifaði annar og fékk um 850 læk.
Önnur athugasemd, með hátt í 500 læk, tók sérstaklega eftir frammistöðu Samúels:
„Ég elska hvað Íslendingurinn er rólegur og yfirvegaður á meðan hinn maðurinn lætur eins og brjálæðingur.“
Annar áhorfandi skrifaði:
„Íslenski maður, þú ert landi þínu til sóma. Þú barst þið með reisn. Guð blessi þig, vinur minn.“
Sú athugasemd hafði fengið yfir 200 læk.
Enn annar spurði hvernig Boteach hefði tekist að tapa kappræðum fyrir manni sem hafði aldrei áður tekið þátt í kappræðum í beinni sjónvarpsútsendingu.
„Þúsund virðingarstig á Íslendinginn,“ skrifaði annar.
„Samúel Guðmundsson, respect,“ sagði einn og annar kallaði hann einfaldlega „goðsögn“.
„Samúel hélt ró sinni ís“
Eitt sem sker sig úr er umtal vegna framkomu mannanna tveggja.
„Shmuley gerði sig að fífli og varð eldrauður á meðan Samúel hélt ró sinni eins og ís…land,“ skrifaði einn notandi.
„Með frábæra ensku, kímnigáfu og víkingamóð hélt Samúel ró sinni gegn málæðinu frá Shmuley. Bravó, ungi maður,“ sagði annar.
„Samúel þurfti ekki einu sinni að verja sig. Rabbíninn sá sjálfur um að koma illa út,“ sagði einn.
Annar benti á að Samúel, sem eftir því sem hann best vissi hefði aldrei áður komið fram í sjónvarpi af þessu tagi, hefði verið „cool as a cucumber“ (gúrkusvalur?) á meðan Boteach, sem er vanur fjölmiðlamaður, hefði misst stjórn á sér.
Fjöldi fólks gekk enn lengra og sagðist nú vilja ferðast til Íslands.
„Bókaði flug til Íslands. Fólkið er frábært,“ skrifaði einn.
„Ég var ekki að plana að fara til Íslands en ég ætla þangað núna,“ sagði annar.
„Nýja uppáhaldslandið mitt: Ísland,“ sagði sá þriðji.
„Ég ætla til Íslands í annað sinn, eingöngu vegna Samúel,“ skrifaði einn notandi og fékk tæplega 90 læk.
„Við erum sterk, sjálfstæð þjóð“
Samúel átti sjálfur eina bestu línuna í viðtalinu undir lokin þegar hann útskýrði hvers vegna málið hefði vakið svo sterk viðbrögð hjá honum og öðrum Íslendingum.
„Við erum sterk, sjálfstæð þjóð,“ sagði Samúel.
Boteach hafði sakað Samúel um gyðingahatur, hatursglæp og lygar og hefur einnig farið miður fögrum orðum um Ísland.
Samúel hélt hins vegar sama yfirvegaða tóninum megnið af viðtalinu.
Á einum tímapunkti varð Morgan meira að segja að láta slökkva á hljóðnema Boteach svo Samúel fengi að ljúka máli sínu.
Morgan tók þó ekki málstað Samúels í einu og öllu. Strax í upphafi spurði hann hvort Samúel viðurkenndi að það hefði verið mjög ögrandi að ganga að Boteach, þykjast vera aðdáandi hans og segja síðan „Fuck Israel“.
„Auðvitað. Það var tilgangurinn,“ svaraði Samúel.
Morgan gagnrýndi hins vegar Boteach síðar harðlega fyrir að saka Samúel um gyðingahatur og sagði ekkert sem hann hefði heyrt frá Íslendingnum benda til þess að hann hataði gyðinga.
Íslendingar taka undir
Svipað mynstur má sjá í umræðum undir fréttum íslenskra miðla.
Undir umfjöllun DV skrifaði einn:
„Flottur Samúel.“
„Er hægt að kjósa um að Samúel fái fálkaorðuna?“ sagði annar.
„Samúel kom vel fyrir, flottur alla leið,“ skrifaði kona sem sagðist hafa átt erfitt með að horfa á Boteach öskra og grípa stöðugt fram í.
„Samúel er alveg frábær,“ sagði annar.
„Stoltur af okkar manni,“ skrifaði einn og annar sagði einfaldlega:
„Samúel til sóma.“
Á Vísi mátti sjá sambærileg viðbrögð.
„Samúel svaraði honum fullkomlega fagmannlega,“ skrifaði einn notandi.
„Vel gert hjá Samúel að brosa bara og láta hann öskra og æpa,“ sagði annar.
Og einn orðaði það með heldur meiri krafti:
„Djöfull er ég ánægður með Samúel.“
Ekki allir hrifnir
Viðbrögðin voru þó ekki algjörlega einróma.
Í umræðunni undir DV spurði einn gagnrýnandi hvort það væri virkilega tilefni til að veita manni fálkaorðu fyrir að segja „fökk Ísrael“ og taldi að sömu viðmið yrðu þá að gilda um sambærileg ummæli um önnur ríki.
Á YouTube mátti einnig finna einstaka áhorfendur sem tóku upp hanskann fyrir Boteach.
Einn sagði að Samúel hefði ráðist að rabbínanum og að eigin viðbrögð myndu vera enn harðari. Annar sagði að ekki ætti að vera ásættanlegt að segja „Fuck Israel“.
Slík ummæli voru hins vegar mjög fá samanborið við þann mikla fjölda sem hrósaði Samúel og fengu almennt mun minni stuðning en jákvæðu athugasemdirnar.
Athugasemdir við málið fóru einnig sums staðar langt út fyrir gagnrýni á Boteach eða Ísraelsstjórn og yfir í ósmekkleg eða hatursfull ummæli. Þau gefa litla mynd af þeirri stemmingu sem virtist ríkja um frammistöðu Samúels og eru því ekki birt hér.