Þingmaður Sjálfstæðisflokksins ruglaðist illilega og gæddi sér á eyrnadropum hundsins

Það þarf meiri en smá kvef til að stoppa Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins, en nú veit hann að það er ekki sama hvaða flösku maður grípur um miðja nótt.

Í færslu á X í morgun lýsir hann því hvernig hann vaknaði, aumur í hálsi eftir nokkra daga af hósta og kvefi.

Auglýsing

Hann greip spreyglas úr baðskapnum, sendi tvö góð púst ofan í hálsinn, en áttaði sig strax á því að eitthvað var mjög, mjög rangt.

„Eitthvað var bragðið rammt og brennandi,“ skrifar hann. Við nánari skoðun blasti við honum mynd af hundi á spreyflöskunni, en í stað hálsspreys hafði hann gripið meðal sem ætlað var eyrum heimilishundsins.

„Varð ekki svefnsamt næstu tímana með eyrnasprey fyrir hunda úðað ofaní kokið á mér ,“ segir þingmaðurinn.

Nútíminn óskar þingmanninum að sjálfsögðu góðs bata.

Eins og sjá má er auðvelt að ruglast á úðurum
Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing