Þjóðin eigi að ráða því hvort tekið verði þátt í Eurovision

Fjörugar umræður sköpuðust á milli Jóns G. Haukssonar og Sigurðar Más Jónssonar í Hluthafaspjalli ritstjóranna á Brotkast.is í gær, þegar þeir tókust á um stöðu fjölmiðlamarkaðarins á Íslandi, hlutverk RÚV og þá þróun að SÝN hafi lagt niður sjónvarpsfréttir um helgar.

Í umræðunni varpaði Jón G. Hauksson gagnrýnu ljósi á stöðu ríkisrekins fjölmiðils á markaðnum og sagði hlut ríkisins vera orðinn yfirþyrmandi. Hann rifjaði upp að fyrir nokkrum árum hafi verið uppi umræða um að draga þyrfti úr umsvifum RÚV, en í stað þess hafi stjórnvöld brugðist við með því að auka hlut ríkisins enn frekar — meðal annars með því að veita styrki til annarra fjölmiðla.

Auglýsing

„Í stað þess að minnka umsvif ríkisins var hent molum í aðra miðla og þannig tryggt að ríkið héldi áfram að stýra markaðnum,“ sagði Jón G., sem lýsti þessari þróun sem sérlega varhugaverðri.

Þjóðin ætti að vera spurð um Eurovision þátttöku

Umræðan beindist einnig að Evróvisjón-keppninni og afstöðu RÚV til þátttöku Ísraela. Jón G. spurði hvers vegna þjóðin væri ekki spurð beint hvort hún vildi yfirhöfuð taka þátt í keppninni. Hann gagnrýndi harðlega það sem hann kallaði andúð stjórnenda RÚV á Ísrael og sagði „vitleysuna ekki riða við einteyming“ þegar kæmi að afstöðu ríkisútvarpsins í málinu.

Þá benti hann á að íslenskir fjölmiðlar væru nú í stöðu þar sem þeir biðu eftir styrkjum frá hinu opinbera, að þessu sinni undir forystu menningarráðherra, Loga Má Einarssonar. Jón G. líkti stöðunni við sjávarútveginn á árum áður, þegar útgerðarmenn biðu í röðum eftir aðgangi að skrifstofu forsætisráðherra til að fá stuðning ríkisins.

„Er framtíð allra fjölmiðla á Íslandi núna í höndum Loga Más?“ spurði Jón G. og varaði við því að slík miðstýring gæti haft alvarleg áhrif á sjálfstæði fjölmiðla og lýðræðislega umræðu.

Klippan hefur vakið talsverða athygli og endurspeglar þá spennu sem ríkir á íslenskum fjölmiðlamarkaði, þar sem rekstrarskilyrði, hlutverk ríkisins og pólitísk áhrif eru sífellt oftar sett undir smásjá.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing