Þorðu ekki að vista mann af ótta við að vera sakaðir um rasisma – Hann fór svo og myrti þrjá

Opinber rannsókn á þreföldu morði í Nottingham hefur leitt í ljós að geðheilbrigðisstarfsmenn hafi árið 2020 rætt hvort vista ætti Valdo Calocane á geðdeild, en ákveðið að gera það ekki, meðal annars með hliðsjón af rannsóknum sem sýna að hlutfall ungra svartra karla í nauðungarvistun er mjög hátt.

Eftir það myrti Calocane þrjár manneskjur í júní 2023, háskólanemana Grace O’Malley-Kumar og Barnaby Webber, bæði 19 ára, og hinn 65 ára Ian Coates. Hann játaði síðar manndráp af gáleysi vegna skerts sakhæfis og var í janúar 2024 dæmdur í ótímabundna vistun á geðsjúkrahúsi.

Rannsókn sem mun standa í tvö ár

Auglýsing

Fyrrum dómari stýrir rannsókninni sem mun standa í tvö ár og er gert ráð fyrir að yfir 100 manns beri vitni. Skoðuð verður aðkoma saksóknara, lögreglu og heilbrigðisyfirvalda að málinu og hvort mistök eða vanræksla hafi átt sér stað í aðdraganda morðanna.

Talinn alvarlega veikur árum saman

Samkvæmt sjúkraskrám Care Quality Commission var ljóst að Calocane hafi verið alvarlega veikur á þeim tveimur árum sem hann var í umsjón Nottinghamshire Healthcare NHS Foundation Trust. Hann glímdi við geðrof og ofsóknarhugmyndir og var greindur með ofsóknargeðklofa í júlí 2020.

Fram kom að hann neitaði að taka lyf, sýndi viðvarandi einkenni geðrofs og beitti grófu ofbeldi þegar hann var ekki í jafnvægi. Þá hafi áhættumat í sumum tilvikum annað hvort dregið úr eða sleppt lykilupplýsingum.

Árið 2020 reyndi hann meðal annars að sparka upp hurð nágranna síns og hótað honum. Þá var rætt hvort beita ætti þvingaðri vistun, en ákveðið að sleppa honum aftur.

Samkvæmt yfirheyrslum og gögnum sem rannsóknaraðilar hafa undir höndum er tekið fram að starfsmenn hafi haft áhyggjur af því að verða sakaðir um kynþáttafordóma fyrir að nauðungarvista Calocane.

Hrottaleg árás um miðja nótt

Upptökur sem rannsókninaðilar hafa undir höndum eru sagðar sýna hvernig Barnaby og Grace gengu heim til sín skömmu eftir klukkan fjögur að morgni 13. júní 2023. Calocane nálgaðist þau, dró upp hníf og réðist á þau með banvænum afleiðingum.

Að lokinni árásinni á nemendurna fór Calocane og stakk Ian Coates til bana og stal sendibíl hans. Hann ók síðan á þrjá gangandi vegfarendur sem slösuðust alvarlega.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing