Þórður Pálsson með fast skot á hlutleysi sérfræðinga RÚV – Myndir segja meira en mörg orð

Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, vakti í dag athygli á tengslum sérfræðings sem RÚV vitnaði til í fréttum sínum um mögulegt brot á EES-samningnum.

Hann birti færslu á X þar sem hann setti tvær myndir hlið við hlið en á báðum sést Dóra Sif Tynes.

Auglýsing

Á fyrri myndinni er Dóra Sif kynnt sem sérfræðingur í Evrópurétti hjá RÚV.

Þar kemur hún fram með þá afstöðu að erfitt sé að fullyrða að tollaálagning ESB á kísilmálm frá Íslandi og Noregi brjóti gegn EES samningnum.

Á seinni myndinni sést Dóra Sif í allt öðru samhengi.

Þar er mynd af henni frá þeim tíma sem hún var varaþingmaður Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Hlutleysi fjölmiðla mikið hitamál þessa dagana

Færsla Þórðar kemur á tíma þar sem trúverðugleiki fjölmiðla hefur verið mikið til umræðu, bæði hér heima og erlendis.

Nýlegt hneyksli hjá BBC þar sem ræða Donald Trump var klippt til og varð til þess að tveir stjórnendur sögðu af sér hefur vakið alþjóðlega umræðu um einhliða slagsíðu og mikilvægi gagnsæis í fréttaflutningi.

BBC biður Donald Trump afsökunar eftir falsfréttir sínar – Segja þó enga ástæðu vera til að fara í meiðyrðamál

RÚV hefur ekki sloppið við þessa gagnrýni en stjórnarmaður Ríkisútvarpsins tjáði sig nýlega um þörfina á að bæta úr einhliða slagsiðu fréttastofunnar.

Gagnrýni stjórnarmanns RÚV sem telur stofnunina hafa smitast af slagsíðu BBC

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing