Þorgerður Katrín: Grænland er ástæða ESB-umsóknar Íslands

„Eftir að hafa horft upp á deilu Bandaríkjanna við Danmörku og ESB vegna Grænlands ígrundar ríkisstjórn Íslands aðild að ESB. Norræna eylandið hyggst efna til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um að endurvekja aðildarviðræður við ESB.“

Tilvitnunin að ofan er úr frétt Euronews sem fjallar um ESB-umsókn Íslands og byggir á viðtali við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Í inngangi fréttarinnar segir að vegna óstöðugleika í samskiptum ríkja við Atlantshafið og viðkvæmrar stöðu alþjóðamála óttist utanríkisráðherra að Ísland einangrist.

Auglýsing

Vísar til deilna um Grænland

Í samtali við fréttamann Euronews vísar Þorgerður Katrín til deilna Bandaríkjanna við Dani og Evrópusambandið um yfirráð yfir Grænlandi og gagnkvæma refsitolla sem deiluaðilar hafa beitt hvor öðrum.

Í viðtalinu segist Þorgerður Katrín óttast að í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði málefnið skrumskælt og kosningabaráttan verði háð í anda Brexit-atkvæðagreiðslunnar í Bretlandi fyrir tíu árum.

„Allir vita um lygarnar sem hafðar voru í frammi í Brexit-umræðunni,“ segir Þorgerður Katrín í Euronews. „En ég treysti þjóðinni,“ bætir hún við.

Ummælin vekja athygli enda hefur sjaldan verið haldið því fram jafn skýrt að ástæða þess að Ísland íhugi aðild að Evrópusambandinu tengist stöðunni í kringum Grænland og breyttri stöðu stórvelda á Norður-Atlantshafi.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing