Þorgerður Katrín hneykslar í ræðu sinni um fæðingarorlof – Heldur hún því fram að kynin séu einungis tvö?

Utanríkisráðherra Viðreisnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, vakti athygli á Alþingi þegar hún talaði um „bæði kyn“ í ræðu sinni um fæðingarorlof.

Ummælin þykja áhugaverð í ljósi þess að sambærileg orðnotkun hefur áður verið harðlega gagnrýnd þegar hún kom frá þingmanni Miðflokksins.

Auglýsing

Í ræðu sinni fjallaði Þorgerður Katrín um fæðingarorlof sem eitt stærsta jafnréttismál síðari tíma og lagði áherslu á að kerfið hefði styrkt bæði kynin og báða foreldra á vinnumarkaði.

Hún varaði jafnframt við breytingum sem gætu grafið undan stöðu kvenna og jafnréttisframförum sem náðst hefðu.

Sama orðalag, ólík viðbrögð

Athygli vekur að hugtakið „bæði kynin“ eru þau sömu og Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, notaði í Kastljósi í umræðu um hinsegin málefni fyrr á þessu ári.

Þau ummæli voru þá túlkuð af ráðherrum Viðreisnar og öðrum sem vísbending um „bakslag“ og jafnvel afturhvarf til fortíðar.

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Viðreisnar, sagði í kjölfar Kastljósviðtalsins að „fortíðin hefði blasað við“ í orðum þingmannsins og hvatti Alþingi og ríkisstjórnina til að sporna gegn slíkri orðræðu.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu og hvort ummæli Þorgerðar Katrínar um að kynin séu bara tvö muni hljóta sömu gagnrýni frá samherjum hennar í Viðreisn.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing