Þórhildur Sunna mótmælir með Gretu Thunberg – gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega á afmælisdegi kosninganna

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, birti í dag mynd af sér í mótmælum ásamt sænska umhverfisaktivistanum Gretu Thunberg. Með þeim á myndinni eru einnig Francesca Albanese, sérstakur skýrslugjafi Sameinuðu þjóðanna um Palestínu, og  Juan Diego Botto, sem að sögn Þórhildar er einn fjölmargra hafnarverkamanna í Genúa sem hafa „unnið hörðum höndum að því að stöðva vopnasendingar til Ísrael“ – aðgerð sem hún segir íslensk stjórnvöld ekki þora að gera.

Myndbirtingin kemur í tilefni þess að í dag er ár liðið frá alþingiskosningum 2024, en Píratar féllu þá af þingi. Þórhildur Sunna segir daginn valda sér djúpum vonbrigðum — en mótmælaferð hennar til Ítalíu hafi minnt hana á „magnaða samstöðu“ í baráttunni fyrir réttindum Palestínumanna.

Harðorð gagnrýni á ríkisstjórnina og nýja „brottfararstöð“

Auglýsing

Með myndinni birti hún langa stöðuuppfærslu þar sem hún ræðst harkalega á núverandi ríkisstjórn og frumvarp um svonefnda „brottfararstöð“, sem Samfylkingin og Viðreisn styðja. Hún sakar stjórnvöld um einbeittann brotavilja gegn réttindum barna.

Í umsögn sem hún segist hafa skilað inn í dag skrifar hún meðal annars:

„Þá er því sterklega mótmælt að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að frelsissvipta megi börn á flótta með fjölskyldum sínum […] jafnvel dögum saman, án aðgangs að dómstólum.”

Hún segir að verði frumvarpið að lögum muni ríkisstjórnin „bera ábyrgð á að festa í lög víðtæk og alvarleg brot á réttindum barna og skilja eftir sig stærstu afturför í réttindum barna á Íslandi í áratugi“.

Þórhildur Sunna gagnrýnir sérstaklega ákvæði um að leyfilegur tími til frelsissviptingar barna geti verið tvöfaldaður ef stjórnvöld telji að foreldrar þeirra hafi hindrað framkvæmd brottvísunar. Hún segir slíkt „skýrt brot á Barnasáttmálanum“ og óréttlætanlega refsingu gagnvart börnum fyrir gjörðir foreldra.

Segir hatursorðræðu hafa fengið að grassera – ástæða þess að Píratar töpuðu fylgi

Fyrrverandi þingmaðurinn tengir málið við pólitíska stöðu Pírata og fall flokksins af þingi. Hún segir að hatur á útlendingum hafi verið látið blómstra undanfarin ár og að Píratar hafi tapað fylgi meðal fólks sem vildi harðari útlendingastefnu.

„Línan okkar var samt bara sú að brjóta ekki mannréttindi útlendinga,“ skrifar hún og bætir við að nú sé enginn á Alþingi lengur sem taki jafn frjálslynda afstöðu í málefnum útlendinga.

Mótmælir þátttöku Ítalíu í „þjóðarmorði“

Í textanum lýsir Þórhildur Sunna mótmælaaðgerðum í Genóa og Róm sem hún tók þátt í ásamt „fjölþjóðlegri sendinefnd aktivista“. Aðgerðirnar beinast gegn því sem hún kallar þátttöku ítalskra stjórnvalda í „þjóðarmorðinu í Palestínu“.

Hún segir að þessi upplifun hafi veitt henni „innblástur og styrk“ – en að heima blasi hins vegar við „vonbrigðin“ þegar hún líti yfir íslensku stjórnmálin og frumvarp ríkisstjórnarinnar um nýja varðhaldsstöð fyrir útlendinga og börn þeirra.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing