Íbúar smáþorpsins Piddington á Englandi ganga að kjörborðinu í dag og greiða atkvæði um hvort þorpið eigi að lýsa yfir sjálfstæði frá Bretlandi.
Atkvæðagreiðslan er táknræn og hefur því ekkert lagalegt gildi. Með henni vilja íbúarnir mótmæla áformum breskra stjórnvalda um að hýsa allt að 1.256 fullorðna karlkyns hælisleitendur í því sem áður voru herbúðir, rétt við þorpið, þar sem aðeins um 350 manns búa.
Hælisleitendurnir verða meira en þrefalt fleiri en íbúar Piddington.
Segjast ekki hafa fengið að hafa áhrif
Breska innanríkisráðuneytið hyggst breyta hluta herstöðvarinnar í opið búsetuúrræði fyrir hælisleitendur. Þeir sem þar verða vistaðir verða ekki í varðhaldi og verða fara frjálsir ferða sinna.
Sveitarstjórn Cherwell héraðs segir að hún hafi ekki verið höfð með í ráðum áður en áformin voru kynnt. Stjórnvöld hafa nú sótt um leyfi til að reka búðirnar í allt að tíu ár.
Íbúar Piddington segja umfang áformanna vera úr öllu samhengi við stærð og innviði svæðisins. Í þorpinu sé hvorki verslun né krá, lýsing sé takmörkuð og göngustígar fáir.
„Ef það á ekki að hlusta á okkur, hvaða tilgangi þjónar þá að vera hluti af landinu?“ sagði Mike Nixon, varaformaður sveitarstjórnar Piddington, þegar hann útskýrði hugmyndina að atkvæðagreiðslunni.
Konur farnar á sjálfsvarnarnámskeið
Áhyggjur af öryggi hafa verið áberandi meðal kvenna í þorpinu. Meira en tuttugu konur hafa skráð sig á sjálfsvarnarnámskeið eftir að þeim var, að sögn íbúa, ráðlagt af lögreglu að gera varúðarráðstafanir.
Í opnu bréfi til kvenna á breska þinginu sögðu 133 konur frá Piddington að öryggi þeirra, frelsi og daglegt líf væru í húfi. Aðeins fjórir þingmenn svöruðu bréfinu.
Íbúinn Melise Witkin sagði áhyggjurnar ekki snúast um stétt eða efnahag heldur einfaldlega stærð áformanna.
„Við erum 356 manns í þorpinu, þar af 46 börn, og hingað eiga að koma 1.250 karlar. Það er ávísun á hörmungar,“ sagði hún.
Niðurstaðan kynnt á miðvikudag
Íbúar samþykktu í júlí með 96 prósentum atkvæða að halda sérstaka atkvæðagreiðslu um sjálfstæði þorpsins. Niðurstaðan verður kynnt á miðvikudagsmorgun.
Formaður Reform UK, Nigel Farage, hefur lýst yfir stuðningi við önnur sveitarfélög sem vilja efna til sambærilegra atkvæðagreiðslna.
Áformin um búðirnar hafa þó ekki enn verið endanlega samþykkt. Umsókn innanríkisráðuneytisins er nú til formlegrar meðferðar og frestur almennings til að koma athugasemdum á framfæri rennur út á fimmtudag.