Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og stjórnandi Karlmennskunnar, er engan veginn ókunnugur því að láta umdeild ummæli falla. Í nýrri færslu gerir hann grín að aldri þeirra sem mættu á stofnfund nýrra samtaka sem kallast Æruvernd.
Í færslunni vísar hann til þess að hópurinn, sem virðist að miklu leyti vera kominn á efri ár og lætur í veðri vaka að þátttakendur eigi mögulega ekki mjög langan tíma eftir.
Hvað er Æruvernd?
Æruvernd eru samtök sem voru stofnuð í kjölfar deilna um minningu séra Friðriks Friðrikssonar. Samtökin segja markmið sitt vera að gæta réttar fólks, bæði lifandi og látinna, sem telur að vegið hafi verið að æru þess án dóms og laga. Einnig er talað um að endurreisa mannorð séra Friðriks og styðja við kristin gildi.
Á stofnfundinum, sem haldinn var um helgina, mættu um 180 manns samkvæmt skipuleggjendum og virðist Þorsteinn telja að flestir þar hafi verið í eldri kantinum.
