Þrír úr sömu fjölskyldu létust í sjóslysi – Ung stúlka í lífshættu

Þrír úr sömu fjölskyldu létust og ung stúlka berst fyrir lífi sínu eftir að fjölskyldan lenti í erfiðleikum í sjónum við Shoreham-by-Sea á suðurströnd Englands síðdegis á þriðjudag.

Karlmaður, kona og unglingsstúlka létust þrátt fyrir umfangsmiklar björgunartilraunir. Yngri stúlka var flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús og er hún sögð í lífshættu.

Auglýsing

Foreldrarnir reyndu að bjarga börnunum

Neyðarlínunni bárust tilkynningar um klukkan þrjú síðdegis um að fjórir einstaklingar væru í vandræðum í sjónum.

Samkvæmt vitnum lentu tvö börn fyrst í erfiðleikum og stukku foreldrar þeirra þá út í til að reyna að bjarga þeim.

Sjómanni tókst að ná öðru barninu úr sjónum áður en hann gerði viðvart.

Fjöldi sjúkrabíla, björgunarbáta og tvær þyrlur voru sendar á vettvang.

Öll úr sömu fjölskyldu

Lögreglan í Sussex staðfesti síðar að karlmaðurinn, konan og unglingsstúlkan hefðu látist.

„Þrátt fyrir tilraunir sjúkraflutningamanna voru þrír einstaklingar, karlmaður, kona og unglingsstúlka, úrskurðuð látin,“ sagði lögreglan.

Yngri stúlkan var flutt á sjúkrahús en hún er enn í lífshættu.

Lögregla segir að allir fjórir hafi verið úr sömu fjölskyldu og að aðstandendur hafi verið látnir vita.

Rannsókn er hafin á því hvað nákvæmlega gerðist en grunur er á að fjölskyldan hafi farið saman út í sjó til að synda en lent skömmu síðar í erfiðleikum.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing