Þrjár konur fengu yfir 60 milljónir án þess að hafa starfað á Íslandi

Þrjár konur frá Austur-Evrópu hafa samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins fengið samtals meira en 60 milljónir króna í greiðslur úr opinberum sjóðum á innan við áratug. Blaðið segir enga þeirra hafa starfað á íslenskum vinnumarkaði.

Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Andreu Sigurðardóttur, blaðamanns Morgunblaðsins, sem birtist í blaðinu í gær undir fyrirsögninni „Íslenskt velferðarkerfi er misnotað“.

Auglýsing

Morgunblaðið segist hafa undir höndum gögn um fleiri hundruð sambærileg tilfelli. Gögnin bendi að mati blaðsins til þess að misnotkun á ýmsum greiðslum úr íslenska velferðarkerfinu sé bæði útbreidd og umfangsmikil.

Þrjár konur fengu saman yfir 60 milljónir

Í einu dæmanna er fjallað um þrjár konur frá Austur-Evrópu, á fimmtugs-, fertugs- og þrítugsaldri, sem komu til Íslands á árunum 2018 og 2019. Konurnar bjuggu áður allar saman en það hafi nýlega breyst.

Samkvæmt Morgunblaðinu fór sú elsta á framfæri Reykjavíkurborgar um mitt ár 2024 og hóf síðar að fá greiðslur frá Tryggingastofnun.

Sú yngsta, sem ber annað eftirnafn en hinar tvær en er sögð skyld þeim, hafi ekki náð lögræðisaldri þegar hún kom til landsins. Hún eignaðist barn með manni sem blaðið segir vera um 18 árum eldri en hún.

Morgunblaðið segir konuna hafa farið á framfæri Reykjavíkurborgar árið 2021 og jafnframt fengið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði innan við einni milljón króna. Í mars síðastliðnum hafi hún síðan farið yfir á greiðslur frá Tryggingastofnun.

Telur tímabært að ná utan um bótakerfið – Segir Marokkóbúa fjórum sinnum líklegri til að þiggja bætur en innfæddir

Þriðja konan hafi farið á framfæri borgarinnar í ársbyrjun 2019 og fengið greiðslur frá Tryggingastofnun frá árinu 2022.

Samkvæmt útreikningum Morgunblaðsins hafa konurnar þrjár fengið samanlagt meira en 60 milljónir króna í skattskyldar tekjur úr opinberum sjóðum á innan við áratug. Blaðið segir enga þeirra hafa nokkru sinni starfað á íslenskum vinnumarkaði.

Rúmlega 23 milljónir á sex árum

Í öðru dæmi fjallar Morgunblaðið um konu á fertugsaldri sem kom til Íslands frá Sómalíu árið 2020. Hún hafi verið á framfæri Reykjavíkurborgar alla tíð síðan og á tímabili jafnframt fengið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Blaðið segir að síðustu þrjá mánuði, að september meðtöldum, hafi konan fengið greiðslur frá Tryggingastofnun samhliða framfærslustyrk Reykjavíkurborgar.

Samkvæmt útreikningum Morgunblaðsins hefur konan fengið rúmlega 23 milljónir króna úr opinberum sjóðum á tæplega sex árum. Þar séu barnabætur, sem ekki teljast til skattskyldra tekna, ekki meðtaldar. Blaðið segir hana aldrei hafa starfað á íslenskum vinnumarkaði.

Fékk yfir 24 milljónir á rúmum fjórum árum

Morgunblaðið greinir einnig frá karli á fertugsaldri frá Palestínu sem kom til Íslands árið 2021.

Samkvæmt blaðinu fékk hann framfærslustyrk hjá tveimur sveitarfélögum fyrstu fjóra mánuðina eftir komuna til landsins. Að því loknu hafi hann farið að fá greiðslur frá Tryggingastofnun.

Blaðið segir manninn hafa fengið samtals meira en 24 milljónir króna úr opinberum sjóðum á rúmum fjórum árum, án þess að hafa nokkru sinni starfað á íslenskum vinnumarkaði.

Þá er fjallað um karlmann á fertugsaldri með óþekkt ríkisfang sem kom til Íslands árið 2017 og fór samkvæmt Morgunblaðinu beint á greiðslur frá Tryggingastofnun. Blaðið segir hann hafa fengið rúmlega 35 milljónir króna þaðan á níu árum án þess að hafa starfað hér á landi.

Tvímenningar fengu styrki þótt annar væri erlendis

Morgunblaðið rifjar einnig upp mál tvímenninga í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Báðir hafi verið á framfæri íslenskra sveitarfélaga frá komu sinni til landsins.

Meðlimir Hamas sagðir tengjast árásinni á Höfðatorgi

Annar mannanna hafi þó verið erlendis frá komu sinni árið 2020 og verið á framfæri sveitarfélags samtímis því að hann var eftirlýstur fram að handtöku fyrr á árinu, að því er fram kemur í umfjöllun blaðsins.

Morgunblaðið segir framfærslustyrki til tvímenninganna hafa numið á annan tug milljóna króna.

Borgin greiddi 2,6 milljarða í fjárhagsaðstoð

Fram kemur í umfjölluninni að Reykjavíkurborg hafi greitt samtals 2.633 milljónir króna í fjárhagsaðstoð á síðasta ári. Greiðslurnar hafi runnið til 2.591 einstaklings.

Ríkissjóður endurgreiðir sveitarfélaginu hluta fjárhagsaðstoðarinnar. Morgunblaðið bendir á að greiðslurnar séu teknar úr vasa útsvarsgreiðenda og skattgreiðenda og því skipti máli að tryggt sé að farið sé vel með opinbert fé.

Greiðslur úr velferðarkerfinu án skráðrar atvinnusögu sanna þó ekki einar og sér að lög hafi verið brotin eða rangar upplýsingar gefnar. Í umfjöllun Morgunblaðsins er hins vegar fullyrt að gögn blaðsins sýni hundruð dæma sem gefi tilefni til að kanna hvort íslenska kerfið sé nægilega varið gegn misnotkun.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing