Þrjú afrísk ríki samþykkja að taka við þúsundum ólöglegra innflytjenda eftir að Bretar hóta þeim refsiaðgerðum

Þrjú afrísk ríki hafa samþykkt að taka við ríkisborgurum sínum sem dvelja ólöglega í Bretlandi eftir að bresk stjórnvöld hótuðu þeim refsiaðgerðum. Um er að ræða Kongó, Angóla og Namibíu. Samkvæmt breska innanríkisráðuneytinu er þetta liður í harðari stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum ólöglegra innflytjenda og brottvísana.

Kongó þriðja ríkið til að gefa eftir

Kongó er þriðja afríska ríkið sem samþykkir að taka við ríkisborgurum sínum eftir að innanríkisráðherrann Shabana Mahmood hótaði að gera ferðir borgara og embættismenn ríkisins svo gott sem ómögulegar ef ekki yrði farið að kröfum Breta.

Auglýsing

Í lok síðasta árs stöðvaði ráðherrann sérstaka ívilnun fyrir kongóska stjórnarerindreka auk þess sem vegabréfsáritunum var hætt. Ástæðan var tregi til samvinnu við brottvísun erlendra afbrotamanna og fólks sem hefur ekki löglegan rétt til að dvelja í Bretlandi.

Angóla og Namibía breyttu um afstöðu

Angóla og Namibía samþykktu í desember að taka við einstaklingum sem vísað er frá Bretlandi eftir að þeim var einnig hótað sambærilegum aðgerðum. Bresk stjórnvöld höfðu sakað ríkin um að tefja brottvísanir með því að draga lappirnar við pappírsvinnu eða krefjast þess að einstaklingar samþykktu sjálfir eigin brottvísun.

Shabana Mahmood sagði að skilaboðin væru skýr. Ef erlend ríki neituðu að taka við eigin ríkisborgurum myndu það hafa afleiðingar.

Allt að 3.000 manns gætu verið fluttir úr landi

Þrátt fyrir að um sé að ræða tiltölulega fáa einstaklinga sem hafa komið til Bretlands með ólöglegum leiðum frá þessum þremur ríkjum, segja yfirvöld að samningarnir geti gert kleift að flytja allt að 3.000 manns úr landi á næstu misserum.

Breska innanríkisráðuneytið greindi jafnframt frá því að meira en 15.000 manns hafi verið fluttir úr landi frá því að ríkisstjórn Keir Starmer tók við völdum eftir kosningarnar 2024. Það jafngildir 45 prósenta aukningu ef miðað er við 19 mánuðina þar á undan. Að auki hafa um 43.000 manns yfirgefið landið sjálfviljugir eftir að þeim var tilkynnt að dvöl þeirra væri ólögleg.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing