Þurfum að geta tekið sársaukafull samtöl

Mikael Torfason var gestur í Spjallinu með Frosta Logasyni þar sem hann ræddi menningarstríð, fjölmiðla og það sem hann telur vera vaxandi tregðu til að takast á við erfiðar umræður í samfélaginu.

Mikael hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarin ár og segir reynslu sína þaðan hafa haft áhrif á sýn sína á íslenska umræðu. Hann telur að samfélagið hafi á köflum forðast sársaukafull samtöl í stað þess að takast á við þau af hreinskilni.

Sársaukafullar en nauðsynlegar umræður

Auglýsing

Í þættinum rifjar Mikael upp umræðu sem fór fram í sjónvarpi fyrir mörgum árum um rétt samkynhneigðra til að ættleiða börn. Hann segir umræðuna hafa verið sársaukafulla, sérstaklega fyrir samkynhneigða karlmenn, en engu að síður nauðsynlega.

Hann bendir á að samkynhneigðir hafi á sínum tíma þurft að sitja undir hörðum og jafnvel særandi skoðunum í opinberri umræðu. Að hans mati hafi hugrekki þeirra til að mæta andstæðingum sínum og taka samtalið verið lykilatriði í réttindabaráttunni.

„Þetta var erfitt samtal, en það þurfti að ganga í gegnum það,“ segir hann og bætir við að það sé mannlegt að upplifa sársauka í slíkum aðstæðum.

Heift og skotgrafir

Mikael gagnrýnir það sem kalla mætti skipulagðan flótta frá ákveðnum umræðuefnum. Hann lýsir andrúmslofti þar sem fólk hefur talið sig hafa rétt fyrir sér og þess vegna ekki þurft að hlusta á sjónarmið sem þeim þykja óþægileg.

Að hans mati hafi skapast heift í umræðunni þar sem fólk hafni einfaldlega samtalinu í stað þess að takast á við það.

Umræða um kyn og hugmyndafræði

Frosti tekur undir að ákveðnar hugmyndir, meðal annars um kyn og félagsmótun, hafi fengið að grassera án þess að raunverulegt samtal fari fram. Hann nefnir sérstaklega þá skoðun að enginn eðlismunur sé á körlum og konum og segir mikilvægt að slíkar hugmyndir fái opna og gagnrýna umræðu.

Í því samhengi nefnir hann Eld Smára Kristinsson, sem hefur gagnrýnt ríkjandi hugmyndafræði um kyn. Frosti segir að þrátt fyrir stöðu hans innan hagsmunasamtaka hafi hann ekki fengið tækifæri til að taka þátt í eðlilegri opinberri umræðu heldur sé oft fjallað um hann sem hatursmann og talað um hann en ekki við hann.

Þörf fyrir hugrekki

Mikael segir að það krefjist hugrekkis að stíga inn í sársaukafull samtöl og hlusta á sjónarmið sem kunna að vera óþægileg. Hann telur að samfélagið þurfi að endurheimta þá getu og eftir að hafa fengið vitneskju um að Eldur sé samkynhneigður segir hann í lokin:

„þeir eru bara svo hugrakkir að taka umræðu sem er ótrúlega sársaukafull.“

Hægt er að sjá brot úr viðtalinu hér fyrir neðan en ef þú vilt sjá allan þáttinn geturðu tryggt þér áskrift að Brotkast.is hérna.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing