Leikararnir Tom Cruise (62) og Ana de Armas (37) vöktu athygli þegar þau yfirgáfu fimmtugsafmælisveislu David Beckham í London saman aðfaranótt 3. maí. Veislan fór fram á margverðlaunuðum veitingastað, Core í Kensington, og var auðvitað fullt útúr dyrum af frægu fólki.
Tom og Ana reyndu að forðast athygli fjölmiðla við brottför sína um kl. 3:30 að morgni. Ana sást halla sér niður í farþegasæti bílsins og notaði regnhlíf til að hylja sig, á meðan Cruise, klæddur í hvítan smóking, virtist afslappaður og spjallaði við gesti áður en þau fóru saman í bíl með aðstoð öryggisvarða. Hann virðist hafa þónokkuð gaman að þessu öllu saman og sést hlæja í aftursæti bílsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau sjást saman. Þau hafa áður verið mynduð saman í London, þar á meðal á Valentínusardaginn og í apríl þegar þau gengu saman í almenningsgarði á afmælisdegi Ana. Þrátt fyrir vangaveltur um rómantískt samband hafa heimildir gefið til kynna að þau séu að vinna að sameiginlegu kvikmyndaverkefni og deili gagnkvæmri virðingu fyrir leiklistarhæfileikum hvors annars.
Afmælisveisla Beckham var glæsileg með gestum á borð við Gordon Ramsay, Eva Longoria og Guy Ritchie. Þó að eldri sonur Beckham, Brooklyn, hafi ekki verið viðstaddur, mættu aðrir fjölskyldumeðlimir og vinir til að fagna þessum merka áfanga.