Toyota hefur slökkt á svokallaðri fjarstýrðri forhitun í yfir 100 þúsund Toyota- og Lexus bílum í Þýskalandi.
Ákvörðunin nær til bíla sem ganga fyrir bensíni og dísel en einnig til hybrid bíla.
Aðgerðin var framkvæmd með uppfærslu í snjallforriti sem fylgir með bílnum og án þess að eigendur hefðu val um annað.
Eigendur fengu tilkynningu í snjallforriti bílsins þar sem fram kom að aðgerðin hefði verið fjarlægð sem valmöguleiki vegna laga í Þýskalandi.
Þar var vísað til þess að notkun forhitara í slíkum bílum krefst gangsetningar bílsins, sem geti talist óþarfa lausagangur og þar með brot á mengunar- og umhverfisreglum, en óþarfa lausagangur bifreiða er bannaður í Þýskalandi.
Mörg þúsund bíleigendur hafa lýst óánægju sinni á spjallsvæðum og samfélagsmiðlum og segja að aðgerðin hafi komið algjörlega án fyrirvara, en mjög kalt er í Þýskalandi þessa dagana.
Toyota seldi yfir 100 þúsund bíla í Þýskalandi á árinu 2025 og er meirihluti þeirra sagður falla undir þessa breytingu, auk eldri bíla.
Rafmagnsbílar verða ekki fyrir sömu skerðingu
Toyota staðfestir að þetta bitni ekki á rafbílum þar sem hitun og kæling fer fram með rafmagni úr rafhlöðum.
Þarna sé því ekki um sama vandamál gagnvart þýskum lögum.
Samkvæmt Toyota ber þeim engin lagaleg skylda til að bæta eigendum óþægindin þar sem aukabúnaðurinn kostaði kaupanda ekkert aukalega og í skilmálum forritsins komi fram að slíkum aðgerðum megi hætta hvenær sem er.
Einn kaupandi sagði óhjákvæmilegt að hugsa til þess hversu mikla stjórn eigandi hefur á nútímabíl þar sem öllu er stýrt með tölvu.