Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur athygli á miklu hvassviðri á svæðinu í dag, en vindur hefur verið austan 13 til 20 metrar á sekúndu með rigningu.
Spáð er suðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu og skúrum upp úr hádegi.
Í tilkynningu frá lögreglu er fólk beðið um að fara varlega og huga vel að lausamunum, sérstaklega trampólínum sem oft fara á loft í slíkum aðstæðum.
Á myndskeiði sem lögreglan birtir sést trampólín feykjast um í Mosfellsbæ á tíunda tímanum í morgun.
Lögreglan fékk myndskeiðið sent frá vegfaranda sem var á göngu með hundinn sinn þegar hann varð vitni að atvikinu.
Lögreglan hvetur alla til að tryggja trampólín og aðra lausamuni vel til að koma í veg fyrir frekari tjón.