Stjórn Trans Íslands skorar á Ríkisútvarpið að taka ekki þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026.
Í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum segir félagið að Eurovision, sem lengi hafi verið mikilvæg hátíð fyrir hinsegin samfélagið, hafi á undanförnum árum verið notuð af Ísrael til „að hvítþvo ímynd sína á alþjóðavísu“.
Telja EBU beita mismunandi mælistikum
Í yfirlýsingunni er vísað til þess að Rússlandi hafi verið vísað úr keppninni aðeins dögum eftir innrásina í Úkraínu árið 2022.
RÚV var meðal þeirra sjónvarpsstöðva sem studdu þá ákvörðun, og finnska ríkissjónvarpið Yle lýsti jafnframt yfir að það myndi ekki taka þátt ef Rússland yrði fengi að keppa.
Trans Ísland segir hins vegar að þrátt fyrir að Ísrael hafi „framið þjóðarmorð í beinni útsendingu“ hafi EBU í þriðja skiptið í röð ákveðið að leyfa landinu þátttöku.
Fjöldi ríkja þegar hætt þátttöku
Sjónvarpsstöðvar í Hollandi, Spáni, Írlandi og Slóveníu hafa nú þegar ákveðið að taka ekki þátt í keppninni á næsta ári.
Trans Ísland hvetur RÚV til að fylgja í fótspor þeirra og heldur því fram að meirihluti Íslendinga styðji slíka ákvörðun samkvæmt könnunum.
„Eurovision er ekkert án þátttökuríkjanna“
Í lok yfirlýsingarinnar segir félagið að sniðganga sé eina leiðin til að þrýsta á breytingar innan keppninnar.
„Stöndum með réttlætinu og neitum að taka þátt í ímyndarherferð Ísraels,“ segir í yfirlýsingunni, sem er undirrituð af stjórn Trans Íslands: Reini Alpha Magnúsdóttur, forseta, Kolbrá Ethel Dagnýjardóttur, varaforseta, Irmu Alexandru Hopkins, ritara, Aró Beri Jónasar, gjaldkera, og Ara Logn, meðstjórnanda.